- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bikarmeistararnir fóru örugglega í undanúrslit

- Auglýsing -

Bikarmeistarar Hauka innsigluðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ í kvennaflokki í kvöld með öruggum sigri á Víkingi, 29:21, í Safamýri. Hafnarfjarðarliðið fetaði þar með í fótspor Fram sem lagði ÍR naumlega í átta liða úrslitum í gærkvöld, 26:25.


Sigur Hauka var aldrei í hættu í viðureigninni í kvöld. Liðið tók af skarið snemma leiks og hélt Víkingum í hæfilegri fjarlægð frá sér. Fjórum mörkum munaði þegar fyrri hálfleikur var að baki, 16:12. Munurinn á liðunum kom enn betur í ljós í síðari hálfleik þegar Haukar voru með sex til átta marka forystu.


Mörk Víkings: Hildur Guðjónsdóttir 8, Auður Brynja Sölvadóttir 5, Valgerður Elín Snorradóttir 4, Ivana Jorna Dina Meincke 3, Sunna Katrín Hreinsdóttir 1.
Varin skot:
Klaudia Katarzyna Kondras 13, Þyri Erla L. Sigurðardóttir 1.

Mörk Hauka: Rakel Oddný Guðmundsdóttir 10, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 5, Inga Dís Jóhannsdóttir 3, Ragnheiður Ragnarsdóttir 3, Embla Steindórsdóttir 2, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 2, Aníta Eik Jónsdóttir 1, Birta Lind Jóhannsdóttir 1, Sara Marie Odden 1, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 1.
Varin skot: Elísa Helga Sigurðardóttir 11, Sara Sif Helgadóttir 7.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -