HK-ingar létu möguleikann á áttunda og síðasta sæti úrslitakeppni Olísdeildar karla sér í greipum ganga í lokaumferðinni í kvöld. Þeir unnu sannfærandi sigur á bikarmeisturum Hauka, 26:23, í Kórnum eftir að hafa verið yfir frá fyrstu mínútu.
Afar traustur varnarleikur og stórleikur Brynjars Vignis Sigurjónssonar lagði grunn að sigri HK sem mætir nýkrýndum deildarmeisturum Vals í átta liða úrslitum.
Haukar verða að gera sér þriðja sætið að góðu. Sigur hefði reyndar engu breytt um þá staðreynd vegna þess að liðin tvö fyrir ofan, Valur og FH, unnu sínar viðureignir.
Haukar mæta Aftureldingu í átta liða úrslitum. Fyrsti leikur annaðhvort 25. eða 26. mars.
Mörk HK: Andri Þór Helgason 5/4, Ágúst Guðmundsson 5, Haukur Ingi Hauksson 5, Sigurður Jefferson Guarino 5, Orfeus Andreou 4, Hjörtur Ingi Halldórsson 1, Örn Alexandersson 1.
Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 16/1, 42,1% – Jovan Kukobat 1/1, 50%.
Mörk Hauka: Freyr Aronsson 7/2, Hergeir Grímsson 4, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3, Sigurður Snær Sigurjónsson 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Birkir Snær Steinsson 1, Þráinn Orri Jónsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 7, 26,9% – Aron Rafn Eðvarðsson 2/1, 22,2%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan í Olísdeildum.




