- Auglýsing -
Bikarmeistarar Hauka drógust gegn Fram í undanúrslitum bikarkeppninnar í handknattleik kvenna. Dregið var í hádeginu í dag. Í hinni viðureign undanúrslita eigast við Íslandsmeistarar Vals og KA/Þór.
Leikirnir fara fram miðvikudaginn 25. febrúar í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Viðureign Hauka og Fram skal hefjast klukkan 18 en leikur Vals og KA/Þórs klukkan 20.15.
Sigurlið undanúrslita mætast að vanda í úrslitaleik í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum laugardaginn 28. febrúar klukkan 15.30.
- Auglýsing -



