- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bikarmeistararnir voru ákveðnir á Akureyri

- Auglýsing -

Nýkrýndir bikarmeistarar Hauka í handknattleik karla lögðu Þór með fimm marka mun, 36:31, í upphafsleik 20. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Haukar voru einnig með fimm marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að baki, 18:13.


Gestirnir í Höllinni á Akureyri gáfu tóninn í upphafi þegar þeir skoruðu átta af fyrstu 10 mörkum leiksins. Segja má að Þórsarar hafi aldrei borið sitt barr eftir þessa byrjun bikarmeistaranna þrátt fyrir einstaka áhlaup í síðari hálfleik. Þau nægðu ekki til þess að slá bikarmeistarana út af laginu.

Haukar færðust upp í annað sæti Olísdeildar með stigunum tveimur sem þeir unnu fyrir í kvöld. Þeir eru tveimur stigum á eftir Val sem trónar á toppnum. Valur mætir Fram annað kvöld. FH er stigi á eftir Haukum og mætir Aftureldingu í Kaplakrika á morgun en fimm viðureignir verða á dagskrá annað kvöld.

Þórsarar sitja í níunda sæti Olísdeildar.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 5, Oddur Gretarsson 5/1, Hákon Ingi Halldórsson 4, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Þórður Tandri Ágústsson 3, Þormar Sigurðsson 2, Aron Hólm Kristjánsson 2, Halldór Kristinn Harðarson 1, Sigurður Ringsted Sigurðsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 9/1, 26,5% – Tristan Ylur Guðjónsson 0.

Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 9/2, Freyr Aronsson 8/3, Andri Fannar Elísson 5, Ólafur Ægir Ólafsson 5, Össur Haraldsson 3, Sigurður Snær Sigurjónsson 2, Hergeir Grímsson 1, Birkir Snær Steinsson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 13/2, 34,2% – Magnús Gunnar Karlsson 1, 33,3%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -