- Auglýsing -
Bjarki Már Elísson mætti galvaskur til leiks með ungversku meisturunum One Veszprém í kvöld í fyrsta sinn eftir Evrópumótið í handknattleik. Bjarki Már lét heldur betur til sín taka í leiknum og skoraði 11 mörk í 11 marka sigri One Vespzrém á HE-DO B. Braun Gyöngyös, 41:30. Leikið var á heimavelli Gyöngyös.
Með sigrinum komst One Veszprém í undanúrslit bikarkeppninnar. Einnig eru Tatbánya, NEKA komin áfram en DEAC og Pick Szeged mætast annað kvöld í síðasta leik átta liða úrslita. Ljóst er að Bjarki Már og félagar í One Veszprém mæta NEKA í undanúrslitum.
- Auglýsing -



