Bjarni Ófeigur Valdimarsson, einn besti leikmaður Olísdeildar karla, hefur framlengt samning sinn við KA til næstu tveggja ára, út leiktíðina vorið 2028. Þar með hefur endi verið bundinn á vangaveltur um hvað taki við Bjarna Ófeigi.
Bjarni Ófeigur, sem er 27 ára gamall, er að leika sitt annað tímabil með KA og var hann þriðji markahæsti leikmaður Olísdeildarinnar með 147 mörk auk þess að gefa langflestar stoðsendingar í deildinni eða 122 talsins. Ekki nóg með að fara fyrir sóknarleiknum þá er Bjarni Ófeigur algjör lykilmaður í öflugum varnarleik KA liðsins. KA hafnaði í fimmta sæti Olísdeildar með jafn mörg stig og ÍBV í fjórða sæti.
Bjarni Ófeigur flutti í höfuðstað Norðurlands frá þýska liðinu GWD Minden sumarið 2024 en áður hafði hann leikið með IFK Skövde í þrjú ár sem lykilmaður í liði sem lék tvö ár í röð til úrslita um sænska meistaratitilinn.
Áður en Bjarni Ófeigur fór til IFK SKövde haustið 2020 hafði hann leikið með FH, Val og Gróttu í Olísdeildinni en einnig með Selfossi á yngri árum.
„Það er gríðarlega sterkt að Bjarni sé búinn að skrifa undir nýjan samning við handknattleiksdeildina en KA-liðið hefur verið að stíga stór skref fram á við í vetur,“ segir m.a. í tilkynningu KA í dag.



