Karlalið TBV Lemgo Lippe hefur í samstarfi við fimm styrktaraðila sína ákveðið að bjóða stuðningsmönnum upp á fría drykki fyrir hvert stig sem liðið vinnur það sem eftir lifir tímabils.
Lemgo hefur verið sannkallað spútniklið á tímabilinu þar sem það er í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar, sterkustu deild heims.
Til mikils er að vinna fyrir stuðningsmenn Lemgo þar sem fyrirtækin fimm, Eisedicht, HakoBau, Pott’s Brauerei, Bad Meinberger og Infinity, munu hvert og eitt gefa 50 lítra af hinum ýmsu drykkjum, væntanlega mestmegnis bjór, fyrir hvert unnið stig í þeim 15 leikjum sem Lemgo á eftir í deildinni á tímabilinu.
Á heimasíðu TBV Lemgo Lippe kemur fram að fríu drykkirnir verða í boði á síðasta heimaleik Lemgo í þýsku deildinni gegn DHfK Leipzig 3. júní.
Gangi vel hjá liðinu gætu lítrarnir af fríum drykkjum því hæglega skipt einhverjum þúsundum í lokaleik tímabilsins hjá Lemgo.



