Luka Cindric, fyrirliði bronsverðlaunahafa Króatíu á Evrópumótinu, og Björgvin Páll Gústavsson markvörður Íslands taka heilshugar undir gagnrýni Dags Sigurðssonar í garð Handknattleikssambands Evrópu, EHF, vegna skipulags mótshaldara.
„Ég styð hann og allir í liðinu okkar gera það sömuleiðis. Ég hef hitt marga leikmenn frá öðrum liðum sem eru sama sinnis,“ sagði Cindric í samtali við sænska miðilinn Handbollskanalen.
Myndskeið: Eldmessa Dags yfir stjórnendum EHF
Erum ekki vélmenni
Á meðal þess sem Dagur sagði í eldræðu á blaðamannafundi í Herning á laugardag var: „Við þurftum að spila leiki númer sex og sjö á innan við 22 klukkustundum. Morguninn eftir var okkur hent í rútu eins og frosnum kjúklingum og okkur ekið hingað.“
„Það er fáránlegt að þurfa að spila annan leik innan við sólarhring eftir að hafa spilað sjötta leikinn okkar á mótinu. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt í öðrum íþróttum.
Ég vona að breyting verði á þessu í framtíðinni því við erum ekki vélmenni. Þetta er engum hollt og ég vona að EHF geti útbúið betri leikjadagskrá fyrir okkur leikmennina,“ sagði Cindric einnig.
Þeir finna fyrir því
Handbollskanalen tók Björgvin Pál einnig tali. Tók hann í sama streng og Cindric og var ómyrkur í máli.
Hætti ekki að gefa kost á mér í landsliðið meðan ég spila handbolta
„Allt þetta hjá EHF er hneyksli og það vita allir. Bæði liðin í bronsleiknum, Ísland og Króatía, gengu í gegnum það nákvæmlega sama og bæði lið töpuðu með þremur mörkum. Sagan skrifar sig svo gott sem sjálf.
Persónulega get ég ekki kvartað mikið því ég hef ekki spilað það mikið á þessu móti, en hafsentarnir okkar sem berjast eins og dýr um hvern einasta lausa bolta og skytturnar okkar sem fara í einn á einn baráttu í 60 mínútur í hverjum leik og þurfa svo að spila tvo leiki á tveimur dögum, þeir finna fyrir því.
EHF þarf að endurskoða þessa leikjadagskrá því þetta er óeðlilegt,“ sagði Björgvin Páll.


