- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bjørnsen leggur skóna á hilluna

- Auglýsing -

Norski hornamaðurinn Kristian Bjørnsen hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna þegar yfirstandandi keppnistímabili með danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold lýkur í vor. Bjørnsen er 37 ára gamall og hefur átt farsælan feril.

„Ég tel mig persónulega hafa átt langan og góðan feril þar sem ég hef fengið að kynnast fjöldanum öllum af áhugaverðu fólki, átti mikið af góðum liðsfélögum og hef sömuleiðis notið þeirra forréttinda að vinna töluvert af titlum og fengið að upplifa fjölda ógleymanlegra augnablika sem munu fylgja mér ævilangt,“ segir Bjørnsen í samtali við heimasíðu Aalborg Håndbold.


Á ferlinum hefur hann orðið sænskur meistari með IFK Kristianstad í tvígang auk þess að verða tvívegis danskur meistari og þrisvar bikarmeistari með Aalborg. Þá lék Bjørnsen í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2024 en þar tapaði Aalborg fyrir Barcelona.

Með norska landsliðinu vann hann tvisvar til silfurverðlauna á heimsmeistaramótum og einu sinni til bronsverðlauna á Evrópumóti. Alls lék hægri hornamaðurinn Bjørnsen 233 A-landsleiki og skoraði 700 mörk fyrir Noreg.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -