Ekkert fararsnið er á leikmönnum karlaliðs Fram enda hefur handknattleiksdeild félagsins staðið í ströngu við að framlengja samninga fjölda þeirra að undanförnu. Erlendur Guðmundsson hefur bæst í hóp þeirra og er búinn að skrifa undir nýjan samning sem gildir til sumarsins 2028.
Áður höfðu þeir Ívar Logi Styrmisson og Kristófer Tómas Gíslason nýverið framlengt samninga sína auk þess sem Haukur Ingi Hauksson er genginn til liðs við Fram frá HK.
Ívar Logi bætir við tveimur árum í Úlfarsárdal
„Við erum ákaflega ánægð með að okkar leikmenn virðast ekkert vilja fara. Það segir okkur að við erum að gera eitthvað rétt. Hann kom til okkar frá Víkingi á sínum tíma og stimplaði sig strax inn í liðið okkar. Erlendur varð Íslands- og bikarmeistari sitt fyrsta tímabil með Fram og spilaði svo alla leiki í vetur hér á Íslandi sem og í Evrópukeppni.
Erlendur leikur alla jafna í hjarta varnarinnar og er að sama skapi orðinn að mjög frambærilegum línumanni í sókn. Við erum gífurlega ánægð með að halda í Erlend og óskum honum sem og FRAM til hamingju með framlenginguna!“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild Fram.


