Breki Hrafn Árnason markvörður Fram hefur æft með karlalandsliðinu í handknattleik síðustu daga. Hljóp hann í skarðið fyrir kollega sinn, Ísak Steinsson, sem meiddist á sunnudaginn og varð að draga sig út úr landsliðshópnum fyrir leikina við sænska landsliðið. Breki Hrafn, sem varð Íslands- og bikarmeistari með Fram fyrir ári, hefur ekki áður verið kallaður inn á æfingar A-landsliðsins.
Breki Hrafn og Ísak hafa undanfarin sumur varið mark yngri landsliðs Íslands á hverju stórmótinu á fætur öðru.

Vitanlega var Breki Hrafn í N1-höllinni á Hlíðarenda í gærkvöld þegar íslenska landsliðið mætti sænska landsliðinu í fyrri vináttuleiknum. Ekki er búist við að Framarinn taki þátt í síðari leiknum við Svía á morgun.
Hefur auga á markvörðum
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur síðustu misseri horft til þriðja markvarðar landsliðsins. Ágúst Elí Björgvinsson var með í leikjum við Þýskaland í byrjun nóvember. Einar Baldvin Baldvinsson tók þátt í æfingum fyrir Evrópumótið í janúar og nú er röðin komin að Breka Hrafni Árnasyni í óvæntri fjarveru Ísaks Steinssonar sem lék sína fyrstu landsleiki fyrir ári gegn Grikkjum í undankeppni EM.



