Íslendingaliðið Blomberg-Lippe leikur um bronsverðlaunin í þýsku bikarkeppninni á morgun eftir þriggja marka tap fyrir Borussia Dortmund, 35:32, í undanúrslitaleik í Porsche Arena í Stuttgart í kvöld. Þetta er annað árið í röð sem Blomberg-Lippe tapar í undanúrslitum bikarkeppninnar.
Blomberg-Lippe mætir Thüringer HC í bronsleiknum á morgun áður en Dortmund og HSG Bensheim/Auerbach leika til úrslita um bikarinn. HSG Bensheim/Auerbach lagði Thüringer HC, 36:34, eftir vítakeppni í undanúrslitum.
Dortmund var skrefinu á undan í undanúrslitaleiknum við Blomberg-Lippe í kvöld. Fátt féll með síðarnefnda liðinu í leiknum. Dómgæslan þótti umdeilanleg auk þess sem markvarlsan var ekki alveg upp á það besta.
Datt svo sem lítið með okkur í dag, hvort sem það var dómgæsla eða markvarsla.
Díana Dögg Magnúsdóttir var markahæst íslensku landsliðskvennanna með þrjú mörk auk fimm stoðsendinga, var með þrjú sköpuð færi, einn fiskaðann ruðning, vann eitt frákast og vann andstæðing einu sinni af leikvelli.
Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði eitt mark og gaf sex stoðsendingar, var með tvö sköpuð færi, vann þrjú vítaköst.
Andrea Jacobsen skoraði ekki mark að þessu sinni en átti eina stoðsendingu.



