Markvörðurinn Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Bruno sem verður 23 ára í næsta mánuði hefur staðið fyrir sínu í marki KA liðsins undanfarin ár.
Bruno kom af krafti ungur inn í markið í meistaraflokksliði KA og hefur staðið fyrir sínu. Hann hefur átt í meiðslum í vetur en hefur ekki látið það koma í veg fyrir að spila nær alla leiki KA-liðsins ásamt Nicolai Horntvedt Kristensen.
Bruno hefur undanfarin ár verið með eina hæstu hlutfallsmarkvörsluna í deildinni og þá lék hann á sínum tíma með U21 árs landsliði Íslands.
„Við erum afar spennt fyrir því að halda Bruno áfram innan okkar raða en auk þess að vera frábær í markinu er Bruno þekktur fyrir frábærar sendingar upp völlinn sem hafa gefið fjölmörg mikilvæg hraðaupphlaupsmörk undanfarin ár,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar KA.
KA er í níunda sæti Olísdeildar karla og fær Íslandsmeistara FH í heimsókn í næstu síðustu umferð deildarinnar á miðvikudagskvöld.