Brynjar Hólm Grétarsson gerði út um vonir KA um fjórða sæti Olísdeildar og þar með um heimaleikjarétt í úrslitakeppni Olísdeildar er hann jafnaði metin fyrir Þór, 31:31, nokkrum andartökum áður en leiktíminn var úti í viðureign Akureyrarliðanna í troðfullri Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld.
KA þurfti að vinna leikinn til þess að ná í heimaleikjarétt í rimmu sinni við ÍBV í átta liða úrslitum en ÍBV og KA enduðu jöfn að stigum. ÍBV stendur örlítið betur að vígi í innbyrðis viðureignum sínum við KA eða sem nemur einu marki.
Þórsarar hafna í níunda sæti Olísdeildar, tveimur stigum á eftir HK sem náði síðasta sætinu í úrslitakeppninni með sigri á Haukum, 25:23, í Kórnum í kvöld.
Leikmenn Þórs eru þar með komnir snemma í sumarleyfi annað árið í röð en síðasta vor unnu þeir Grill 66-deildina síðla vetrar. Fyrir öllu hjá Þór er að liðið hélt sæti sínu í Olísdeildinni, nokkuð sem margir töldu að þeim gæti ekki lánast.
KA var tveimur mörkum yfir í hálfleik í kvöld, 17:15. Síðari hálfleikur var jafn og spennandi. Liðin skiptust á um að vera marki yfir.
Mörk Þórs: Hákon Ingi Halldórsson 8/7, Brynjar Hólm Grétarsson 8, Kári Kristján Kristjánsson 4, Þórður Tandri Ágústsson 4, Jón Ólafur Þorsteinsson 2, Þormar Sigurðsson 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 1, Oddur Gretarsson 1, Aron Hólm Kristjánsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 10, 25,6% – Tristan Ylur Guðjónsson 0.
Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 12/5, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 7, Dagur Gautason 4/1, Arnór Ísak Haddsson 3, Patrekur Stefánsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 1, Einar Birgir Stefánsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 16/1, 34,8% – Bruno Bernat 0.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



