Ein allra fremsta handknattleikskona Noregs um langt árabil, Camilla Herrem, hefur greinst með brjóstakrabbamein. Hún sagði frá þessu á Instagram-síðu sinni í dag. Hún byrjar í læknismeðferð á morgun en þá verður vika liðin síðan læknir staðfesti að Herrem væri með krabbamein. Þrjár vikur eru síðan Herrem fann hnút í öðru brjóstinu.
„Mér finnst þetta ekki raunverulegt ennþá,“ segir Herrem í myndbandinu sem sjá og heyra má neðst í þessari frétt.
Herrem er 38 ára gömul og tveggja barna móðir. Hún hætti að leika með norska landsliðinu eftir sigurinn á Evrópumótinu í desember. Þá voru landsleikirnir 332 og mörkin 951.
Herrem vann tvenn gullverðlaun á Ólympíuleikum, síðast fyrir ári, þrenn gullverðlaun á HM og sex gullverðlaun á EM á 18 ára landsliðsferli.
Frá 2017 hefur Herrem leikið með Sola frá Stavanger þar sem eiginmaður hennar, Steffen Stegavik er þjálfari. Hún lék um árabil með félagsliðum í Danmörku, Rúmeníu og Norður Makedóníu.
Hér fyrir neðan má heyra og sjá tilkynningu Herrem.