Justus Fischer, línu- og varnarmaðurinn ungi hjá TSV Hannover-Burgdorf og þýska landsliðinu, missti óvænt af úrslitaleik EM 2026 gegn Danmörku í Herning í byrjun mánaðarins þegar hann veiktist skyndilega.
Fischer, sem er nýorðinn 23 ára, hafði átt frábært mót en...
Nýliðið Evrópumót karla í handknattleik var það næstvinsælasta í sögunni, sé eingöngu litið til aðsóknar á leiki. Alls seldust um 660 þúsund aðgöngumiðar að leikjum mótsins. Aðeins EM 2024 í Þýskalandi var betur sótt en rúmlega ein milljón aðgöngumiða...
Zlatko Dalic, landsliðsþjálfari karlaliðs Króatíu í knattspyrnu, furðar sig á því að landar sínir séu í stórum stíl sammála gagnrýni Dags Sigurðssonar, þjálfara karlaliðs Króatíu í handknattleik, í garð skipulags Handknattleikssambands Evrópu á leikjadagskrá á Evrópumótinu. Dalic hafi sjálfur...
Alfreð Gíslason, þjálfari silfurverðlaunahafa Þýskalands á Evrópumóti karla, nýtti tækifærið til þess að skjóta á gagnrýnendur sína þegar hann ræddi við þýska blaðið Bild um árangurinn á mótinu.
Alfreð var harðlega gagnrýndur eftir að Þýskaland tapaði óvænt fyrir Serbíu í...
Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króata lék á als oddi á hátíðarhöldum til heiðurs króatíska landsliðsins og bronsverðlauna liðsins á Evrópumótinu í handknattleik. Hann lét sér ekki muna um að stíga á svið og syngja leika með hljómsveit lag Prince, Purple...
Áhorfsmet á íþróttaleik í sjónvarpi hér á landi var sett á föstudagskvöldið þegar undanúrslitaleikur Íslands og Danmerkur á Evrópumóti karla í handknattleik var sendur út. Meðaláhorf á leikinn var 66,4% og uppsafnað áhorf 70%. Frá þessu segir á vef...
Thomas Arnoldsen er nú einn fjölda danskra landsliðsmanna sem hafa unnið Evrópumeistaratitilinn, heimsmeistaratitilinn og ólympíumeistaratitilinn með liðinu, hvern á eftir öðrum. Arnoldsen sker sig hins vegar úr.
Hann hefur nefnilega ekki enn tapað leik með danska A-landsliðinu í 32 leikjum....
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson skipar sér í sess bestu markvarða Evrópumótsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi ef litið er til fjölda varðra skota. Óðinn Þór Ríkharðsson er þá sá leikmaður sem lék næstflestar mínútur á öllu mótinu.
Í tölfræðisamantekt Handknattleikssambands...
Luka Cindric, fyrirliði bronsverðlaunahafa Króatíu á Evrópumótinu, og Björgvin Páll Gústavsson markvörður Íslands taka heilshugar undir gagnrýni Dags Sigurðssonar í garð Handknattleikssambands Evrópu, EHF, vegna skipulags mótshaldara.
„Ég styð hann og allir í liðinu okkar gera það sömuleiðis. Ég hef...
Ómar Ingi Magnússon jafnaði met yfir fjölda skoraðra marka í bronsleik Evrópumóts karla þegar hann skoraði tólf mörk í 33:34 tapi Íslands fyrir Króatíu á EM 2026 í gær.
Íslenski Daninn Hans Óttar Lindberg Tómasson skoraði sömuleiðis tólf mörk fyrir...
Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki valinn besti leikstjórnandi Evrópumótsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi að ósekju, enda fór það svo að hann var stoðsendingahæsti leikmaður mótsins.
Gísli Þorgeir, sem var valinn í úrvalslið EM sem leikstjórnandi fyrir bronsleikinn gegn Króatíu...
Danska varnartröllið Simon Hald hefur opinberað að hjartsláttartruflanir hafi valdið því að hann þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik í undanúrslitum Evrópumótsins gegn Íslandi í Herning en ekki höfuðmeiðsli eins og danskir fréttamiðlar höfðu greint frá...
Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, sýtti sérstaklega fjarveru tveggja sterkra varnarmanna eftir tap liðsins fyrir Danmörku, 34:27, í úrslitaleik Evrópumóts karla í Herning í Danmörku í gær. Þá undraði hann sig á notkun dómara leiksins á myndbandsdómgæslu.
Justus Fischer, mjög sterkur...
Mathias Gidsel sló í kvöld markamet Evrópumóts karla þegar hann skoraði sjö mörk í sjö marka sigri Danmerkur á Þýskalandi í úrslitaleik mótsins í Herning í kvöld.
Gidsel skoraði alls 68 mörk í níu leikjum á Evrópumótinu og bætti þar...
„Ég ber svo mikla virðingu fyrir íslenska landsliðinu að ég mun ekki hætta að gefa kost á mér í landsliðið svo lengi sem ég spila handbolta,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handknattleik spurður að leikslokum á Evrópumótinu í...