Evrópumót karla í handknattleik fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð frá 15. janúar til 1. febrúar 2026. Íslenska landsliðið verður á meðal þátttökuliða og er í F-riðli með landsliðum Ítalíu, Póllands og Ungverjalands.
Hér fyrir neðan er riðlaskiptingin, leikstaðir,...
Sólarhringur er síðan íslenska landsliðið lagði ítalska landsliðið örugglega í fyrstu umferð Evrópumótsins í handknattleik karla, 39:26, í Kristianstad Arena í hreint magnaðri stemningu. Þegar þetta er ritað er tæpur sólarhringur í næstu orrustu í keppninni, gegn Pólverjum. Íslenskur...
Króatía, sem Dagur Sigurðsson þjálfar, vann nauman sigur á Georgíu, 32:29, í fyrstu umferð E-riðils Evrópumóts karla í Malmö Arena í Malmö í Svíþjóð í kvöld.
Hvorki gekk né rak hjá Króatíu framan af fyrri hálfleik þar sem Georgía komst...
Sander Sagosen varð aðeins fimmti leikmaðurinn í sögunni sem skorar 200 mörk á Evrópumótum þegar hann skoraði þriðja og síðasta mark sitt í 39:22 sigri Noregs á Úkraínu í fyrstu umferð C-riðils í Unity Arena í Bærum í Noregi...
Katla María Magnúsdóttir og liðsfélagar hennar í Holstebro virðast stefna rakleitt upp í dönsku úrvalsdeildina. Í dag vann liðið auðveldan útisigur á Aarhus, 32:18, í 13. umferð B-deildarinnar og er enn á toppnum með fullt hús stiga.
Holstebro er með...
Nokkrir þekktir handknattleiksmenn verða að gera sér að góðu að fylgjast með Evrópumótinu í janúar heima í stofu, vegna meiðsla eða sökum þess að þeir hlutu ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfara.
Frakkland: Nedim Remili.Danmörk: Emil Madsen, Thomas Arnoldsen.Svartfjallaland: Nebojsa Simic,...
Valur tyllti sér aftur á toppinn í Olísdeild kvenna með stórsigri á KA/Þór, 31:16, í 13. Umferð deildarinnar í N1 höllinni á Hlíðarenda í dag.
Valur jafnaði ÍBV að stigum á toppnum, bæði eru með 22 stig en Valur vann...
Dana Björg Guðmundsdóttir, fyrirliði Volda, átti góðan leik fyrir liðið þegar það heimsótti Storhamar 2 í norsku B-deildinni og vann auðveldlega, 31:22, í 14. umferð deildarinnar í dag.
Dana Björg skoraði þrjú mörk fyrir Volda og gaf auk þess tvær...
Kúveit undir stjórn Arons Kristjánssonar vann geysilega öruggan sigur á Hong Kong, 39:25, í annarri umferð forkeppni HM 2026 í C-riðli Asíumótsins í Kúveit í dag. Með sigrinum tryggði Kúveit sér sæti í milliriðli.
Næst mætir Kúveit liði Sameinuðu arabísku...
Elias Ellefsen á Skipagøtu fer ekki ofan af því að stuðningsmenn færeyska landsliðsins í handknattleik séu þeir bestu í heimi.
Færeyjar knúðu fram dramatískt 28:28 jafntefli gegn Sviss í fyrstu umferð D-riðils Evrópumótsins í Unity Arena í Bærum í Noregi...
Keppni hófst á nýjan leik í Olísdeild kvenna síðasta laugardag. Handboltahöllin, vikulegur þáttur um handbolta, hóf þar með göngu sína aftur eftir jólaleyfi. Á mánudagskvöld var farið yfir viðureignir 12. umferðar Olísdeildar kvenna og magnaða frammistöðu Hafdísar Renötudóttur í stórsigri...
Elísa Elíasdóttir skoraði fallegt mark fyrir Val í öruggum sigri á Fram í 12. umferð Olísdeildar kvenna í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal síðastliðinn laugardag.
Handboltahöllin, vikulegur þáttur á mánudagskvöldum, sýndi frá markinu sem Elísa skoraði eftir einkar vel útfærða skyndisókn.
Myndskeið af...
„Ég finn kannski aðeins meira fyrir leiknum í gær og ligg meira upp í rúmi meðan peyarnir spila á spil. Ég geri bara það sem ég þarf til þess að jafna mig,“ sagði Janus Daði Smárason landsliðsmaður í handknattleik...
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, birti í gær skemmtilegt myndskeið af leikmönnum F-riðils Evrópumóts karla þar sem þeir reyna að bera fram erfið orð úr tungumálum þjóða hverrar annarrar.
Elliði Snær Viðarsson fær það hlutverk að reyna að bera fram langt pólskt...
Einar Þorsteinn Ólafsson æfði ekkert með íslenska landsliðinu í handknattleik karla í Kristianstad í dag. Ekki er útlit fyrir að hann verði klár í slaginn gegn Pólverjum á morgun. Einar Þorsteinn veiktist í fyrrakvöld og hefur verið settur í...