Harpa María Friðgeirsdóttir innsiglaði Fram sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ í handknattleik. Svellköld fór hún inn úr vinstra horninu 10 sekúndum fyrir leikslok, vippaði boltanum í Ingunni Maríu Brynjarsdóttur, markvörð ÍR, og skoraði markið sem reyndist skipta sköpum í...
Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik gengur til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Larvik í sumar. Larvik er um þessar mundir eitt af þremur sterkustu handknattleiksliðum Noregs í kvennaflokki, með 25 stig eftir 16 leiki í deildinni, þremur stigum á...
Alls hafa 19 þjóðir af 32 tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti karla sem fer fram í Þýskalandi eftir tæpt ár. Þjóðirnar sem höfnuðu í sex efstu sætum nýafstaðins Evrópumóts hafa allar tryggt sér farseðilinn á HM 2027, þeirra á...
Luka Cindric, fyrirliði bronsverðlaunahafa Króatíu á Evrópumótinu, og Björgvin Páll Gústavsson markvörður Íslands taka heilshugar undir gagnrýni Dags Sigurðssonar í garð Handknattleikssambands Evrópu, EHF, vegna skipulags mótshaldara.
„Ég styð hann og allir í liðinu okkar gera það sömuleiðis. Ég hef...
Ómar Ingi Magnússon jafnaði met yfir fjölda skoraðra marka í bronsleik Evrópumóts karla þegar hann skoraði tólf mörk í 33:34 tapi Íslands fyrir Króatíu á EM 2026 í gær.
Íslenski Daninn Hans Óttar Lindberg Tómasson skoraði sömuleiðis tólf mörk fyrir...
Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga. Í gær var tilkynnt að Katrín Erla Kjartansdóttir hafi framlengt samning sinn til næstu tveggja ára og í morgun var tilkynnt að Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir hafi gert slíkt hið...
Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki valinn besti leikstjórnandi Evrópumótsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi að ósekju, enda fór það svo að hann var stoðsendingahæsti leikmaður mótsins.
Gísli Þorgeir, sem var valinn í úrvalslið EM sem leikstjórnandi fyrir bronsleikinn gegn Króatíu...
Andrea Jacobsen, landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV og gengur til liðs við félagið frá þýska félaginu Blomberg-Lippe í sumar.
Andrea, sem er 27 ára vinstri skytta, hefur leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi og Danmörku...
Danska varnartröllið Simon Hald hefur opinberað að hjartsláttartruflanir hafi valdið því að hann þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik í undanúrslitum Evrópumótsins gegn Íslandi í Herning en ekki höfuðmeiðsli eins og danskir fréttamiðlar höfðu greint frá...
Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, sýtti sérstaklega fjarveru tveggja sterkra varnarmanna eftir tap liðsins fyrir Danmörku, 34:27, í úrslitaleik Evrópumóts karla í Herning í Danmörku í gær. Þá undraði hann sig á notkun dómara leiksins á myndbandsdómgæslu.
Justus Fischer, mjög sterkur...
Mathias Gidsel sló í kvöld markamet Evrópumóts karla þegar hann skoraði sjö mörk í sjö marka sigri Danmerkur á Þýskalandi í úrslitaleik mótsins í Herning í kvöld.
Gidsel skoraði alls 68 mörk í níu leikjum á Evrópummótinu og bætti þar...
„Ég ber svo mikla virðingu fyrir íslenska landsliðinu að ég mun ekki hætta að gefa kost á mér í landsliðið svo lengi sem ég spila handbolta,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handknattleik spurður að leikslokum á Evrópumótinu í...
Danmörk tryggði sér í kvöld Evrópumeistaratitil karla á heimavelli með því að leggja Þýskaland, sem Alfreð Gíslason þjálfar, 34:27 í úrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Alfreð og Þjóðverjar gera sér því silfrið að góðu.
Er þetta...
Leikið verður til undanúrslita og úrslita á Evrópumóti karla í handknattleik í Jyske Bank Boxen í Herning á föstudag og sunnudag. Einnig verður leikið um fimmta sæti mótsins sem þjónar e.t.v. ekki miklum tilgangi þótt það sé gert þar...
Ísland hefur lokið leik á Evrópumóti karla í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Ísland tapaði bronsleiknum í Herning í Danmörku í dag og hafnar því í fjórða sæti.
Þrátt fyrir að vera undir allan leikinn gafst íslenska liðið ekki upp og...