Julian Köster skoraði svokallað „flautumark“ og tryggði Gummersbach nauman en mikilvægan sigur á Lemgo á heimavelli í toppbaráttu þýsku 1. deildarinnar í handknattleik, 28:27. Markið var ekki staðfest fyrr en dómarar höfðu farið ítarlega yfir upptöku á síðustu sekúndubrotum...
Undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik 2026 hófst miðvikudaginn 15. október 2025 og lýkur sunnudaginn 12. apríl 2026. Leikið er í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja sæti tryggja...
Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og landsliðsins í handknattleik, kemur ekki til móts við landsliðið í Podgorica í Svartfjallalandi eins og hugmyndir voru uppi um í gærkvöld. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari staðfesti þetta við handbolta.is í kvöld.
Hafdís fékk boltann í höfuðið...
Einar Rafn Eiðsson, spilandi aðstoðarþjálfari KA, mun yfirgefa félagið í sumar þegar hann flytur búferlum á höfuðborgarsvæðið ásamt fjölskyldu sinni. Einar Rafn greindi frá þessu í samtali við Handkastið, sem greinir frá því að bæði Haukar og FH séu...
Arnór Viðarsson og liðsfélagar hans í HF Karlskrona unnu góðan heimasigur á Hammarby IF, hvar Gunnar Steinn Jónsson er í þjálfarateyminu, í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Arnar Birkir Hálfdánsson átti þá góðan leik fyrir Amo HK er liðið tapaði...
Antoine Óskar Pantano var á árlegu kjöri íþróttafólks Gróttu á þriðjudagskvöld valinn íþróttakarl ársins 2025. Antoine Óskar er aðeins 19 ára gamall en er þrátt fyrir ungan aldur að spila sitt fjórða tímabil með meistaraflokki Gróttu.
Auk þess er hann...
Ída Margrét Stefánsdóttir var á þriðjudagskvöld kjörin íþróttakona Gróttu árið 2025, er árlegt kjör á íþróttafólki félagsins fór fram.
Ída Margrét hefur leikið með Gróttu frá árinu 2022 og myndar fyrirliðateymi liðsin með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur.
Grótta lék í Olísdeildinni á...
Füchse Berlín tryggði sér sigur í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla með því að vinna sterkan útisigur á Aalborg Håndbold, 35:31 í 13. umferð riðilsins í gærkvöldi. Bæði lið voru þegar komin áfram í átta liða úrslit en...
Gunnar Kári Bragason hefur verið kallaður aftur til FH úr láni frá Selfossi, sem hann hefur leikið með á yfirstandandi tímabili. Gunnar Kári er þegar kominn með leikheimild og getur því spilað með FH í síðustu þremur leikjum liðsins...
Vináttulandsleikir Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla fimmtudaginn 19. mars og laugardaginn 21. mars fara fram í N1-höll Valsara við Hlíðarenda og í Kaplakrika, heimavelli FH. HSÍ sagði frá þessu í morgun og jafnframt að sala aðgöngumiða á leikina...
Obba, eða Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, liðsstjóri kvennalandsliðsins í handknattleik til tveggja áratuga, var heiðruð af HSÍ í gærkvöld áður en viðureign Íslands og Svartfjallalands hófst á Ásvöllum. Obba var kölluð fram á keppnisgólfið. Jón Halldórsson formaður og Alfa Brá...
Leikmenn Þórs og Hauka riðu á vaðið í gærkvöld er þeir mættust í upphafsleik 20. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik. Fjórir leikir verða á dagskrá í kvöld í Vestmannaeyjum, Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík. Síðasti leikur umferðarinnar verður annað kvöld...
Ethel Gyða Bjarnasen markvörður Fram var kölluð inn í landsliðið í handknattleik kvenna í kvöld. Ethel Gyða, sem er nýliði í landsliðinu, kemur inn í stað Hafdísar Renötudóttur sem fékk boltann á höfuðið í sigurleiknum við Svartfellinga á Ásvöllum...
Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann frækinn sigur á Svartfellingum, 28:27, í 3. umferð undankeppni Evrópumóts kvenna í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld. Þar með komst íslenska liðið inn á sporið á nýjan leik á leið sinni að lokakeppni...
Nýkrýndir bikarmeistarar Hauka í handknattleik karla lögðu Þór með fimm marka mun, 36:31, í upphafsleik 20. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Haukar voru einnig með fimm marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að...