Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims samkvæmt Alþjóðahandknattleikssambandinu undanfarin þrjú ár, viðurkennir að hafa glímt við andleg veikindi þegar hann var að brjótast fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum.
Daninn hefur unnið hvern titilinn á fætur öðrum á ferlinum og er...
DHfK Leipzig mátti sín lítils gegn SG Flensburg-Handewitt þegar liðin áttust við í þýsku 1. Deildinni í handknattleik karla í Flensburg í kvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik vann Flensburg að lokum átta marka sigur, 36:28.
Flensburg er þar með í...
Johanna Bundsen, sænskur markvörður Metz, átti stórkostlegan leik fyrir liðið þegar það vann Havre í frönsku 1. deildinni í síðustu viku. Hún varði ekki einungis fjölda skota heldur skoraði hún fimm mörk í einum og sama hálfleiknum.
Bundsen varði 14...
Víkingur Reykjavík tyllti sér á topp Grill 66 deildar karla með öruggum sigri á Selfossi 2, 39:28, í Safamýri í dag. Valur 2 fékk þá Hörð frá Ísafirði í heimsókn í N1 höllina á Hlíðarenda og vann 33:30.
Víkingur er...
Undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik 2026 hófst miðvikudaginn 15. október 2025 og lýkur sunnudaginn 12. apríl 2026. Leikið er í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja sæti tryggja...
Hergeir Grímsson, nýkrýndur bikarmeistari með Haukum, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2028. Handkastið greinir frá.
Hergeir, sem er 29 ára leikstjórnandi, er á sínu öðru tímabili með Haukum eftir að hafa leikið með Stjörnunni...
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar 18 ára landsliðs karla í handknattleik hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga á höfuðborgarsvæðinu vikuna 16. - 22. mars.
Tveir af þremur markvörðum hópsins eru úr ÍBV, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli...
Framarar í liði tvö skoruðu þrjú síðustu mörkin og tryggðu sér sigur á Fjölni, 32:31, í Grill 66-deild karla í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Fjölnishöllinni en um var að ræða aðra viðureign í 20. umferð deildarinnar. Kristófer...
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla tilkynnir í hádeginu á mánudaginn hverjir skipa landsliðshópinn sem mætir sænska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum 19. og 21. mars. Fyrri viðureignin verður í N1-höllinni á Hlíðarenda og sú síðari í Kaplakrika.
Auk þess...
Þýski landsliðsmaðurinn og vinstri hornamaðurinn Rune Dahmke hefur skrifað undir nýjan samning við THW Kiel til eins árs, út leiktíðina 2027. Dahmke fylgdi þar með í fótspor Domagoj Duvnjak og Hendrik Pekeler.
Arnór Atlason þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins TTH Holstebro verður...
KA settist í fjórða sæti Olísdeildar karla eftir 17 marka sigur á heillum horfnum leikmönnum Stjörnunnar, 38:21, í síðasta leik 20. umferðar. Leikið var á heimavelli Stjörnunnar sem var níu mörkum undir þegar fyrri hálfleikur var að baki, 20:11.
KA-menn...
Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev hafa valið hóp leikmanna til æfinga á höfuðborgarsvæðinu 16. - 19. mars. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en nánara skipulag kemur inn á Abler þegar nær dregur, segir í tilkynningu HSÍ. Æfingarnar eru...
Auk viðureignar Stjörnunnar og KA í Olísdeild karla sem hefst klukkan 18.30 í kvöld eru tvær umferðir eftir af deildarkeppninni. Tvær síðustu umferðirnar verða leiknar mánudaginn 9. mars og fimmtudaginn 12. mars.
Í kvöld:Stjarnan - KA, kl. 18.30.
Næst síðasta umferð...
Á árlegu kjöri íþróttafólks Gróttu síðastliðinn þriðjudag voru hjónin Bernódus Sveinsson og Kristín Björg Svövudóttir útnefnd sjálfboðaliðar ársins af Handknattleiksdeild Gróttu.
„Þau hafa bæði unnið lengi og mikið óeigingjarnt starf fyrir handboltann í Gróttu og hafa hlotið bronsmerki félagsins. Undantekningalaust...
Sigursteinn Arndal þjálfari FH sat uppi í stúku og fylgdist með liði sínu þegar það vann nauman sigur á Aftureldingu, 30:29, í Kaplakrika í 20. umferð Olísdeildar karla í gærkvöld. Aron Pálmarsson stýrði FH-liðinu í fyrsta sinn sem aðalþjálfari,...