Lokaumferð Olísdeildar karla fór fram í heild sinni í kvöld og er þar með ljóst hvaða lið mætast í fyrstu umferð átta liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn.
Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn og mætir því HK sem náði áttunda og síðasta sætinu...
Brynjar Hólm Grétarsson gerði út um vonir KA um fjórða sæti Olísdeildar og þar með um heimaleikjarétt í úrslitakeppni Olísdeildar er hann jafnaði metin fyrir Þór, 31:31, nokkrum andartökum áður en leiktíminn var úti í viðureign Akureyrarliðanna í troðfullri...
Stjarnan tapaði ellefta leik sínum í Olísdeild karla í röð í þegar liðið beið ósigur gegn Fram, 24:26, í Heklu höllinni í Garðabæ í kvöld. Stjarnan hafnar þar með í ellefta sæti og fer í fjögurra liða umspil með...
Valur varð deildarmeistari í Olísdeild karla eftir öruggan sigur á vængbrotnu liði ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld, 34:28. Staðan var jöfn, 17:17, að loknum fyrri hálfleik, 17:17. Þegar kom fram yfir miðjan síðari hálfleik áttu leikmenn Vals meira inni...
FH hafði örugglega betur gegn ÍR, 34:28, í lokaumferð Olísdeildar karla í Kaplakrika í kvöld. Þar með er ljóst að FH hafnar í öðru sæti deildarinnar og ÍR endar í neðsta sæti og er fallið niður í Grill 66...
Selfoss tryggði sér áframhaldandi veru í Olísdeild karla með jafntefli gegn Aftureldingu, 27:27, í lokaumferð deildarinnar í Set höllinni á Selfossi í kvöld.
Selfoss hafnar því í tíunda sæti með 12 stig, fer ekki í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn og ekki...
Íslendingalið TTH Holstebro tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitakeppni um danska meistaratitilinn með því að leggja Bjerringbro-Silkeborg örugglega að velli, 36:32, í 24. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í Holstebro í kvöld.
Arnór Atlason er þjálfari Holstebro og Jóhannes...
Varnarmaðurinn sterki hjá KA, Daði Jónsson, sleit hásin á æfingu liðsins í gærkvöldi og verður ekki með liðinu fyrr en á næstu leiktíð. Akureyri.net segir frá þessum tíðindum í kvöld. Daði hefur verið kjölfesta í varnarleik KA-liðsins á leiktíðinni.
KA...
IFK Kristianstad, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar, hljóp á sig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli fyrir OV Helsingborg, 32:33, í næstsíðustu umferð deildarinnar í kvöld. Helsingborg berst í bökkum í neðri hluta deildarinnar.
Aðeins eru tveir sólarhringar...
Íslendingalið Kolstad frá Noregi og ungverska liðið One Veszprém töpuðu heimaleikjum sínum í lokaumferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í kvöld.
Kolstad var þegar úr leik og hafnar í botnsæti riðilsins en Veszprém er komið í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar,...
Styrmir Hugi Sigurðarson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild HK. Hann er einn af efnilegri leikmönnum félagsins og hefur látið talsvert til sín taka með HK-liðinu í 18 leikjum í Olísdeildinni á leiktíðinni.
„Það er mikið fagnaðarefni og ríkir mikil...
Fjórir leikmenn sem leika með íslenskum félagsliðum eru í 32 manna æfingahópi færeyska landsliðsins sem Peter Bredsdorff-Larsen og Hjalti Mohr Jacobsen þjálfarar hafa valið til æfinga 15. og 21. mars í Þórshöfn. Fjórmenningarnir eru Valsararnir Allan Norðberg og Bjarni...
Stórleikur landsliðsmannsins Viggós Kristjánssonar með HC Erlangen gegn GWD Minden í þýsku 1. deildinni í handknattleik hefur komið honum í einstakan hóp handknattleiksmanna í þýsku 1. deildinni. Viggó skoraði 16 mörk í leiknum. Hann varð þar með 15. handknattleiksmaðurinn...
Útlit er fyrir að landsliðskonan og leikmaður ÍR, Katrín Tinna Jensdóttir, sé á batavegi eftir að hafa fengið þungt högg á gagnaugað í fyrri landsleik Íslands og Svartfjallalands í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í síðustu viku. Hún segir við...
Barcelona varð í efsta sæti B-riðils Meistaradeildar karla í handknattleik en keppni í riðlinum lauk í gærkvöld. Evrópumeistarar SC Magdeburg töpuðu öðrum leiknum í röð og höfnuðu í öðru sæti. Barcelona og Magdeburg voru fyrir nokkru búin að tryggja...