Valur stendur vel að vígi í undanúrslitarimmunni við KA eftir að hafa unnið viðureign liðanna í KA-heimilinu í kvöld, 33:30. Valur hefur þar með tvo vinninga gegn engum KA-liðsins og getur bundið enda á einvígið á heimavelli á mánudagskvöld....
Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna fer í úrslitaleik við Portúgal á sunnudaginn um mögulegt sæti í lokakeppni Evrópumóts. Þetta varð ljóst í kvöld eftir að Svartfellingar unnu Portúgala, 34:26, í Matosinhos í Portúgal í kvöld.
Íslenska landsliðið þarf að vinna...
Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar Sporting Lissabon eru komnir í átta liða úrslit í Meistaradeild Evrópu í handknattleik þrátt fyrir eins marks tap fyrir Wisla Plock í síðari viðureign liðanna í Plock í Póllandi í kvöld, 28:27. Sporting vann...
Sandra Erlingsdóttir varð í gær sú fjórtánda til þess að skora 200 mörk íslenska landsliðið í handknattleik. Með sjö mörkum í tapleiknum, 35:30, fyrir Færeyingum í þjóðarhöllinni, Við Tjarnir, náði fyrirliðinn 200. markinu á landsliðsferlinum í 48. landsleiknum.
Thea skoraði...
Tveimur leikjum Íslendingaliðs SC Magdeburg í þýsku 1. deildinni hefur verið seinkað, báðum vegna knattspyrnuleikja sem fara fram sömu daga.
Magdeburg, sem Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson leika með, átti að mæta TVB Stuttgart í...
Haukur Þrastarson hefur átt frábært fyrsta tímabil með liði sínu Rhein-Neckar Löwen í þýsku 1. deildinni. Haukur er stoðsendingahæstur í deildinni með 149 stoðsendingar í 27 leikjum. Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá SC Magdeburg er næst stoðsendingahæstur með 126 í...
Hilmar Guðlaugsson hefur verið ráðinn afreksþjálfari kvenna hjá handknattleiksdeild Selfoss.Hilmar mun koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna með Eyþóri Lárussyni, auk þess að leiða þjálfarateymi 3. og 4. flokks kvenna.
Hilmar hefur þjálfað handknattleik í tæp þrjátíu ár og býr...
Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur staðfest brottför Stefáns Árnarsonar, þjálfara meistaraflokks karla, í tilkynningu á samfélagsmiðlum. Stefáni er þakkað fyrir samstarfið. Hann tók við þjálfun meistaraflokks Aftureldingar fyrir ári en hafði áður verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og þjálfari 3. flokks í...
Norska landsliðskonan Nora Mørk hefur ekki náð sér fyllilega á strik með liði sínu Team Esbjerg á síðari hluta tímabilsins. Smávægileg meiðsli auk tíðra veikinda hafa verið að valda Mørk vandræðum í vor.
„Ég hef smitast af umgangspestum og streptókokkum,...
Þýska félagið HC Erlangen hefur samið við franska markvörðinn Rubens Pierre um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Pierre kemur frá Tremblay Handball í Frakklandi, þar sem hann er með 33 prósent hlutfalls markvörslu á tímabilinu,...
Ekkert fararsnið er á leikmönnum karlaliðs Fram enda hefur handknattleiksdeild félagsins staðið í ströngu við að framlengja samninga fjölda þeirra að undanförnu. Erlendur Guðmundsson hefur bæst í hóp þeirra og er búinn að skrifa undir nýjan samning sem gildir...
Einn leikur er á dagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í kvöld. KA og Valur mætast í öðrum leik liðanna í undanúrslitum í KA heimilinu á Akureyri. Valur er 1:0 yfir í einvíginu eftir stórsigur í fyrsta leik liðanna í N1-höllinni...
Ísak Steinsson og liðsfélagar í Drammen unnu Bækkelaget, 28:24, í næstsíðustu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Drammen HK situr í fjórða sæti deildarinnar.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sjö mörk þegar Kolstad vann Runar, 35:31, á útivelli í næstsíðustu umferð...
Stefán Árnason hefur verið leystur frá starfi þjálfara karlaliðs Aftureldingar samkvæmt heimildum Handkastsins í gærkvöld. Vitnað er til þess að leikmönnum hafi verið tilkynnt uppsögnin gær. Sannast þar að þjóð veit þá þrír vita.
Leiða má líkur til þess að...
„Það eru mikil vonbrigði að tapa þessum leik þótt það sé engin skömm að tapa fyrir færeyska landsliðinu á heimavelli þess. Færeyska liðið er sterkt en það er svekkjandi hvernig við fórum í gegnum leikinn,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari...