- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Molakaffi: Rúnar, Andri, Aguinagalde, Tønnesen, Smits, Kiesler og fleiri

Ríflega 5.000 aðgöngumiðar hafa verið seldir í Arena Leipzig í kvöld þegar SC DHfK Leizpig undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar tekur á móti Flensburg í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Andri Már Rúnarsson verður í eldlínunni með SC DHfK Leizpig....

Fram náði fram hefndum í Kaplakrika

Eftir tvo tapleiki í Olísdeidinni í vetur þá náðu leikmenn Fram hefndum í kvöld þegar þeir unnu Íslands- og deildarmeistara FH 27:24, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Kaplakrika. Næst mætast liðin á heimavelli Fram á mánudaginn...

Stjarnan og Afturelding mætast í úrslitum

Stjarnan og Afturelding mætast í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik. Áætlað er að fyrstu leikurinn af mögulega fimm fari fram miðvikudaginn 23. apríl. Stjarnan vann Víking naumlega í Safamýri í kvöld, 24:23, eftir að framlengja varð viðureignina um...
- Auglýsing -

Flautumark í framlengingu tryggði Aldís Ástu og samherjum sigur

Flautumark Evu Jaspers tryggði Aldísi Ástu Heimisdóttur og samherjum sigur í framlengdri viðureign við Skuru, 34:33, á heimavelli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld. Clara Petersson jafnaði metin fyrir Skuru 12 sekúndum...

Ester Amíra og Þóra verða áfram hjá Haukum

Áfram halda Haukar að skrifa undir samninga við ungar Haukastúlkur en Ester Amíra Ægisdóttir og Þóra Hrafnkelsdóttir hafa framlengt veru sína á Ásvöllum. Báðar eru þær fæddar árið 2006 og hafa verið hluti af meistaraflokks hóp Hauka undanfarin tímabil. Auk...

Leikmenn Kúbu stungu af í Mexíkó

Þrír leikmenn kvennalandsliðs Kúbu stungu af eftir að kúbanska liðið tryggði sér sæti á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik eftir undankeppnina sem fram fór í Mexíkó á dögunum. Naomis Mustelier, Islenia Parra og Nahomi Rodríguez sáust fara upp í lest...
- Auglýsing -

Áfram er penninn á lofti á Hlíðarenda

Áfram er penninn á lofti í herbúðum Vals og síðasta sólarhringinn hefur verið tilkynnt að undirritaðir hafi verið samningar við tvo yngri leikmenn í kvennaflokki í viðbót við aðrar tvær sem staðfestu fyrr í vikunni um áframhaldandi veru hjá...

Dagskráin: Fram sækir FH heim og umspilið heldur áfram

Handboltafólk situr ekki auðum höndum í kvöld. Undanúrslit Olísdeildar karla í handknattleik hefjast í Kaplakrika með viðureign FH og Fram auk þess sem undanúrslit umspils Olísdeildar kvenna heldur áfram. Leikmenn liðanna fjögurra sem eigast við, Stjarnan, HK, Afturelding og...

Molakaffi: Ókeypis aðgangur, Gomes, Gonzalez, uppselt, Metz

Frír aðgangur verður á fyrsta heimaleik Skanderborg AGF í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla á sunnudaginn gegn Mors-Thy. Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikur með Skanderborg AGF. Helsti styrktaraðili Skanderborg AGF, Djurslands Bank, hefur keypt allan aðgöngumiðana á leikinn. Portúgalski...
- Auglýsing -

Haukar gerðu út um leikinn snemma í síðari hálfleik

ÍBV tókst að halda í við Hauka í 35 mínútur í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni kvenna í handknattleik í kvöld. Lengra komst ÍBV ekki og Haukar juku eftir það forskot sitt og unnu með sex marka mun 26:20,...

Fjögurra marka sigur Selfyssinga í fyrsta leik

Selfoss tók frumkvæðið í viðureign sinni við ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik með fjögurra marka sigri í Sethöllinni á Selfossi, 31:27. Heimaliðið var tveimur mörkum yfir í hálfleik. Næst mætast liðin í Skógarseli á laugardaginn og...

Molakaffi: Thomsen, Jensen, Birkmose, Hjermind, Lund

Helle Thomsen hefur verið ráðin landsliðsþjálfari Danmerkur í handknattleik kvenna. Hún er fyrsta konan sem þjálfar landsliðið í nærri 60 ár. Thomsen mun til að byrja með vera áfram þjálfari rúmenska meistaraliðsins CSM Búkarest. Hún segist gjarnan vilja sinna...
- Auglýsing -

Óli fór á kostum þegar Tryggvi og félagar jöfnuðu metin

Tryggvi Þórisson og liðsfélagar í IK Sävehof gerðu sér lítið fyrir og unnu Ystads IF HF í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld, 35:28. Leikið var í Partille. Staðan var jöfn að loknum fyrri hálfleik, 16:16.Þar...

Dregið í riðla HM kvenna fimmtudaginn 22. maí

Eftir að undankeppni Evrópuhluta umspils heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik lauk í gær hafa landslið frá 31 þjóðum tryggt sér keppnisrétt á mótinu sem fram fer í Hollandi og Þýskalandi frá 26. nóvember til 14. desember. Alls taka 32 landslið...

Þórsarar eru byrjaðir að safna liði fyrir Olísdeildina

Þórsarar hafa hafist handa við að styrkja lið sitt fyrir átökin í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Samið hefur verið við fyrsta nýja leikmanninn, Patrekur Guðni Þorbergsson markvörð.Patrekur Guðni, sem er 18 ára, kemur frá HK. Hann lék...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -