- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Ísland sendir tvö lið á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Norður Makedóníu 20.-26. júlí í sumar. Hátíðin fer fram annað hvert á og er ætluð ungu íþróttafólki Evrópu, 17 ára og yngri. Keppt er í nokkrum íþróttagreinum, þar á meðal handknattleik. Aðeins átta lið...

Dana Björg í úrvalsliði marsmánaðar í Noregi

Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik og leikamaður Volda í Noregi var valin í úrvalslið marsmánaðar í næsta efstu deild kvenna í handknattleik. Keppni lauk í deildinni fyrir viku. Framundan hjá Volda er umspil um sæti í úrvalsdeildinni. Dana Björg,...

Molakaffi: Óðinn, Tumi, Ísak, Viktor

Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum og skoraði níu mörk í níu skotum í níu marka sigri Kadetten Schaffhausen, 32:23, á Wacker Thun í þriðja og síðasta leik liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni svissnesku A-deildarinnar í handknattleik í...
- Auglýsing -

Stórt skref stigið í átt að meistaratitlinum

Portúgalsmeistarar Sporting stigu skref í átt að því að verja meistaratitilinn í kvöld þegar þeir unnu FC Porto, 35:32, í viðureign liðanna sem fram fór í Dragao Arena í Porto. Sporting hefur þar með eins vinnings forskot á Porto...

Íslendingaslagur í úrslitum í Ungverjalandi

Íslenskir landsliðsmenn í handknattleik karla mætast í úrslitaleik ungversku bikarkeppninnar á morgun. One Veszprém með Aron Pálmarsson og Bjarka Má Elísson innan sinna raða vann Tatabánya, 40:26, í undanúrslitum í dag. Pick Szeged með Janus Daða Smárason í stóru...

Elvar Örn leikur til úrslita annað árið í röð

Elvar Örn Jónsson og félagar í MT Melsungen leika til úrslita í þýsku bikarkeppninni gegn THW Kiel. MT Melsungen vann Balingen, 31:27, í undanúrslitum í Lanxess Arena í Köln. THW Kiel vann Rhein-Neckar Löwen, 32:31, eftir framlengingu í hinni...
- Auglýsing -

Láta þess ógetið að leikið var fyrir luktum dyrum

Hvorki Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, né Handknattleikssamband Evrópu, EHF, láta þess getið í fréttum af leikjum Íslands og Ísraels, sem fram fóru í vikunni að viðureignirnar hafi farið fram fyrir luktum dyrum á Ásvöllum. Vitað er að HSÍ var í...

Berglind vonar það besta

Berglind Þorsteinsdóttir landsliðskona í handknattleik og leikmaður Fram tognaði á vinstri ökkla í síðari hálfleik í síðari viðureign Íslands og Ísraels í umspili HM á Ásvöllum á fimmtudagskvöld. Tók hún ekkert þátt í leiknum eftir það af skiljanlegum ástæðum. Berglind...

Molakaffi: Olga, Árni, Þorvar, Pastor, vallarþulur

Olga Bjarnadóttir, 2. varaforseti í framkvæmdastjórn Íþrótta- og ólympíusambands Íslands hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis forseta ÍSÍ á þingi sambandsins 16.-17. maí. Áður hefur Willum Þór Þórsson lýst yfir framboði. Olga er þrautreynd eftir áratugastarf innan...
- Auglýsing -

Yfirlýsing kvennalandsliðsins: Hvers vegna fær Ísrael enn að taka þátt?

Yfirlýsing frá kvennalandsliði Íslands í handknattleik „Við leikmenn kvennalandsliðs Íslands í handbolta teljum mikilvægt að koma reynslu okkar á framfæri eftir að hafa spilað tvo umspilsleiki gegn landsliði Ísraels í þessari viku. Það er tímabært að alþjóðleg íþróttahreyfing – og...

Leikdagar úrslitaleikja Vals hafa verið staðfestir

Leikdagar og leiktímar úrslitaleikja Vals og spænska liðsins Conservas Orbe Zendal BM í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í næsta mánuði hafa verið staðfestir. Fyrri viðureignin fer fram í Porrino laugardaginn 10. maí. Stefnt er á að flauta til leiks...

Skoruðu báðar í fyrsta landsleiknum

Inga Dís Jóhannsdóttir og Alexandra Líf Arnarsdóttir, leikmenn Hauka, léku sína fyrstu A-landsleiki í gærkvöld þegar íslenska landsliðið vann ísraelska landsliðið öðru sinni í umspilsleik vegna heimsmeistaramótsins. Þær létu ekki þar við sitja heldur skoruðu einnig sín fyrstu mörk...
- Auglýsing -

Ekkert alvarlegt hjá Elísu

Elísa Elíasdóttir leikmaður Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins segir meiðsli þau sem hún varð fyrir á síðustu mínútu fyrri viðureignar Íslands og Ísraels í fyrrakvöld, ekki vera alvarleg. Elísa tognaði á ökkla þegar hún hljóp fram leikvöllinn til þess að...

Molakaffi: Gísli, Ómar, Hernández, Viggó, Óðinn, Elvar, Ágúst

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk og gaf þrjár stoðsendingar í stórsigri SC Magdeburg á HC Erlangen, 30:19, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Ómar Magnússon skoraði þrjú mörk og átti einnig þrjár stoðsendingar. Spænski markvörðurinn Sergey Hernández...

Steinunn hefur leikið sinn síðasta landsleik

Steinunn Björnsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik með landsliðinu í handknattleik. Hún staðfesti það m.a. í samtali við Vísir í kvöld eftir að íslenska landsliðið tryggði sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer síðar á þessu ári. „Það var að...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -