Norska handknattleikssambandið hefur hóað saman í nefnd sem á að vega og meta starf Jonas Wille landsliðsþjálfara karla síðustu fimm ár. Samningur Wille rennur út í vor. Ekki verður tekin ákvörðun um hvort honum verði boðinn nýr samningur eða...
Ekki er víst að vináttulandsleikir Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla í næsta mánuði fari fram í Laugardalshöll. Hin aldna þjóðarhöll innanhússboltaíþrótta er bókuð fyrir aðra viðburði þá viku sem áformað er að landsleikirnir fari fram, þ.e. í landsliðsvikunni...
Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Dagur Máni Siggeirsson, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við handknattleiksdeild Stjörnunnar. Hann heldur þar með áfram að feta í fótspor foreldra og fleiri úr nærfjölskyldunni á handboltavellinum.
„Dagur hefur farið í gegnum allt yngri flokka starfið hjá...
Berta Rut Harðardóttir og liðsfélagar hennar í Kristianstad HK töpuðu fyrir IF Hallby, 34:29, í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í sænsku úrslitakeppninni í úrvalsdeildinni í Hallby í gærkvöldi.
Kristianstad er í áttunda sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina,...
Mikil ólukka dundi yfir tvo leikmenn HK í einni og sömu vörn þegar liðið tapaði 36:31 fyrir ÍR í Olísdeild karla á mánudagskvöld. Aron Dagur Pálsson fór þá úr axlarlið og hnéskel Leós Snæs Péturssonar fór nánast í sömu...
Á fundi aganefndar HSÍ á þriðjudag var einn leikmaður í Grill 66 deild kvenna og einn starfsmaður í 3. flokki kvenna úrskurðaðir í eins leiks bann.
Sara Rún Gísladóttir leikmaður Fram 2 hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar...
Úlfar Páll Monsi Þórðarson átti frábæran leik fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann einkar öruggan sigur á Eurofarm Pelister 2, 36:22, á útivelli í efstu deild Norður-Makedóníu í gærkvöldi.
Monsi skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og var jafn markahæstur...
Eftir fyrsta tapið í 10 mánuði á síðasta laugardaginn komst Kadetten Schaffhausen inn á sigurbraut í A-deildinni í Sviss á ný í gærkvöldi. Kadetten Schaffhausen vann HC Kriens-Luzern í æsilega spennandi leik á heimavelli síðarnefnda liðsins, 27:26.
Óðinn Þór Ríkharðsson...
Ambros Martín þjálfari spænska kvennalandsliðsins í handknattleik hefur tekið að sér að þjálfa Al-Duhail í Doha í Katar. Martín hefur fram til þess þjálfað kvennalið, s.s. ungverska liðið Györi og Rostov-Don í Rússlandi auk þess að þjálfa kvennalandsliðs Rússlands...
„Það var bara gaman að þessu. Ég er þakklát fyrir að fá allar þessar sendingar og geta nýtt færin mín,“ sagði Rakel Oddný Guðmundsdóttir leikmaður Hauka og landsliðskona við handbolta.is í kvöld eftir að hún skoraði 13 mörk í...
„Þetta var bara skita hjá okkur,“ sagði Katrín Anna Ásmundsdóttir leikmaður Fram eftir átta marka tap liðsins fyrir Haukum, 35:27, í Olísdeild kvenna á Ásvöllum í kvöld. Framliðið var heillum horfið í síðari hálfleik og var mest 12 mörkum...
SC Magdeburg heldur sigurgöngu sinni áfram í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld þegar liðið hóf leik á ný eftir EM-hlé. Magdeburg, með Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon í broddi fylkingar, lagði spútniklið Lemgo, 36:32, á...
Haukar gjörsigruðu Fram, 35:27, í viðureign liðanna í Olísdeild kvenna í handknattleik í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld og settust í þriðja sæti, stigi fyrir ofan ÍR sem á leik til góða. Yfirburðir Hauka voru algjörir í síðari hálfleik...
Aron Pálmarsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá FH frá og með deginum í dag. Hann mun sinna því starfi út yfirstandandi tímabil, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá handknattleiksdeildar FH í kvöld.
Þetta er...
Elvar Ásgeirsson tryggði Ribe-Esbjerg annað stigið gegn GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Mosfellingurinn jafnaði metin, 30:30, þegar rétt innan við mínúta var til leiksloka. Þrátt fyrir ákafa sókn GOG þá lánaðist liðinu ekki að skora sigurmarkið...