- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Átta marka sigur hjá Íslendingum

Guðjón Valur Sigurðsson og hans menn í Gummersbach fögnuðu öruggum sigri á heimavelli í kvöld, 35:27, á Eisenach í 21. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Gummersbach var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Í hálfleik var...

Bjarki Már tapaði í Kielce – Füchse og Aalborg eru komin í átta liða úrslit

Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í ungverska meistaraliðinu One Veszprém töpuðu með eins marks mun fyrir Indurtria Kielce í Póllandi í kvöld, 36:35, í 11. umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. One Veszprém hangir áfram á þriðja sæti riðilsins,...

Dagur Snær tekur við af Hilmari

Dagur Snær Steingrímsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK frá og með næsta tímabili. Hann tekur við starfa í júní. Hilmar Guðlaugsson, sem er þjálfari HK, tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði sér að hætta þegar keppnistímabilið...
- Auglýsing -

Hinrik Hugi verður áfram með ÍBV

Hinrik Hugi Heiðarsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV til loka keppnistímabilsins 2027/28. Hinrik Hugi er öflugur línumaður sem leikið hefur með ÍBV og HBH auk þess sem hann var lánaður um skeið til Hauka á síðasta keppnistímabili. Hinrik Hugi...

Fær ekki að spila vegna blóðþynningarlyfja

Simon Hald, línumaður og varnartröll þrefaldra meistara Danmerkur, þarf að bíða enn um sinn eftir því að komast aftur á handboltavöllinn. Hald fann fyrir hjartsláttartruflunum í leik gegn Íslandi í undanúrslitum EM 2026 í Herning í lok janúar og...

Ráðningin á Aroni vekur athygli erlendra miðla

Ráðning FH á Aroni Pálmarssyni sem aðstoðarþjálfara karlaliðsins hefur vakið töluverða athygli hjá erlendum miðlum. Aron átti frábæran feril sem leikmaður áður en skórnir fóru á hilluna að loknu síðasta tímabili og vekur það sem hann tekur sér fyrir...
- Auglýsing -

„Ég held kjafti“

Danski þjálfarinn Jan Pytlick, faðir eins besta handboltamanns heims, Simon, segir það erfitt að vera ekki stöðugt að gefa syni sínum ráð þó hann myndi glaður vilja gera það. Simon er einn af lykilmönnum danska landsliðsins sem nú er ríkjandi...

Spánn hefur ráðið nýjan landsliðsþjálfara

Joaquín Rocamora hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennalandsliðs Spánar. Rocamora tekur við starfinu af Ambros Martín og hefur þegar hafið störf. Hann hefur áður þjálfað yngri landslið kvenna hjá Spáni auk þess að þjálfa kvennalið Atticgo Elche frá árinu...

Miðasala á bikarvikuna í fullum gangi

Í næstu viku verður sannkölluð handboltaveisla þegar undanúrslit og úrslit Powerade bikars kvenna og karla fara fram í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Miðasala er í fullum gangi á Stubbi. Undanúrslit kvenna fara fram á miðvikudeginum 25. febrúar og undanúrslit karla...
- Auglýsing -

Óvænt félagaskipti hjá Gunnari Steini

Gunnar Steinn Jónsson hefur ansi óvænt fengið félagaskipti til sænska félagsins Hammarby, sem leikur í úrvalsdeildinni þar í landi. Skiptin eru ekki síst óvænt vegna þess að skórnir hjá Gunnari Steini eru á hillunni. Handkastið greinir frá því að hann...

Dagskráin: Hafnarfjarðarslagur á Ásvöllum

Keppni í Olísdeildum karla og kvenna heldur áfram í kvöld þegar þrír leikir fara fram. Tveir leikir fara fram í 19. umferð Olísdeildar karla og einn í 18. umferð Olísdeildar kvenna. Hægt verður að horfa á alla þrjá leikina...

Evrópumeistararnir eru komnir á græna grein

Evrópumeistarar SC Magdeburg eru komnir í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik þótt enn séu þrjár umferðir eftir af riðlakeppninni. Magdeburg innsiglaði sæti í átta liða úrslitum í kvöld með öruggum sigri á danska liðinu GOG, 37:30, í...
- Auglýsing -

Markasúpa og ellefu marka sigur hjá Ísak og félögum

Ísak Steinsson, markvörður og liðsfélagar í Drammen, vann Kristiansand TH í miklum markaleik á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld, 46:35, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 26:21. Varnarleikurinn sat algjörlega á hakanum...

Níu marka sigur og fimm stiga forskot á toppnum

IK Sävehof, sem Elín Klara Þorkelsdóttir leikur með, er komið með fimm stiga forskot í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna eftir níu marka sigur á Kristianstad HK, 36:27, í Kristianstad Arena í kvöld í 18. umferð af...

Átján marka sigur hjá Íslendingaliðinu

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe vann stórsigur, svo ekki sé dýpra í árinni tekið í kvöld, þegar liðið lagði Göppingen, 40:22, í 16. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Staðan var 17:7 eftir fyrri hálfleik.Blomberg-Lippe er í öðru sæti deildarinnar með 28...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -