- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Molakaffi: Elvar, Guðmundur, Ágúst, uppselt, Hansen

Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk og var næst markahæstur þegar Ribe-Esbjerg lagði Fredericia HK, 32:30, í æfingaleik í gær. Keppni í dönsku úrvalsdeildinni í karlaflokki hefst á miðvikudaginn. Upphafsleikur Fredericia HK, sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar, verður þó ekki...

Ýmir Örn hefur skrifað undir lengri samning

Ýmir Örn Gíslason landsliðsmaður í handknattleik hefur framlengt samning sinn við þýska 1. deildarliðið Frish Auf! Göppingen sem gildir til ársins 2028. Félag segir frá þessum gleðilegu tíðindum í kvöld. Ýmir Örn, sem er fyrirliði Göppingen, kom til félagsins...

Leikhús fáránleikans og trúðasýning í bónus

„Mér fannst við vera flottir og strákarnir stóðu sig vel gegn einu besta liði landsins. Við erum bara ennþá að slípa okkur til. Þetta var svolítið stöngin inn, stöngin út hjá okkur. Síðan var þetta svolítið leikhús fáránleikans og...
- Auglýsing -

Mættum til að vinna bikarinn sem í boði var

„Það var bikar í boði og við fórum að sjálfsögðu í leikinn til þess að vinna hann,“ sagði Hrannar Guðmundsson þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í viðtali við handbolta.is í kvöld eftir að Stjarnan lagði Fram, 29:28, í spennandi leik í...

Selfoss mætir ÍBV í úrslitaleik á laugardag

Selfoss mætir ÍBV í úrslitaleik á Ragnarsmóti kvenna í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi á laugardaginn klukkan 13. Það varð ljóst eftir að Selfoss lagði Víking í hörkuleik, 30:28, í annarri umferð mótsins í kvöld. Selfoss og ÍBV hafa...

Stjarnan varð meistari meistaranna

Stjarnan vann Fram í Meistarakeppni HSÍ í handknattleik karla, 29:28, í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Staðan var jöfn í hálfleik, 15:15. Stjarnan var með frumkvæðið í síðari hálfleik og var einu til tveimur mörkum á undan. Fram átti þess kost...
- Auglýsing -

Annar stórsigur hjá ÍBV á Selfossi

ÍBV vann stórsigur á Aftureldingu í annarri umferð Ragnarsmótsins í handknattleik kvenna í Sethöllinni á Selfossi í kvöld, 26:15. Staðan var 10:8 að loknum fyrri hálfleik. ÍBV hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu mjög örugglega. Afturelding...

Andstæðingur Stjörnunnar leikur til úrslita

Væntanlegur andstæðingur Stjörnunnar í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik, rúmenska liðið Minaur Baia Mare, leikur til úrslita í meistarakeppninni í Rúmeníu á morgun gegn tvöföldum meisturum síðasta tímabils, Dinamo Búkarest. Minaur Baia Mare vann HC Buzău í æsispennandi leik...

Enn situr allt fast í leiðindamálinu í Viborg

Engin lausn virðist í sjónmáli í máli dönsku handknattleikskonunnar Christina Pedersen. Hún hefur verið í æfingabanni hjá danska úrvalsdeildarliðinu Viborg í mánuð. Samherjar hennar settu félaginu stólinn fyrir dyrnar þegar æfingar hófust á ný eftir sumarleyfi. Þær neituðu allar...
- Auglýsing -

Ómar Ingi markahæstur í níunda sigurleiknum – Ýmir, Óðinn og Arnar

Evrópumeistarar SC Magdeburg unnu í gær síðasta æfingaleik sinn á undirbúningstímabilinu þegar liðið lagði Stuttgart á heimavelli, 29:25. Stuttgart, var þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12. Þetta var níundi sigur Magdeburg í jafn mörgum æfingaleikjum á síðustu vikum. Fyrsti...

Molakaffi: Makuc, Mandic, Portner, Hernandez, Carlson, Sigrist

Þýska handknattleiksliðið THW Kiel staðfesti í gær að Slóveninn Domen Makuc gangi til liðs við félagið næsta sumar. Makuc hefur verið leikmaður Barcelona frá 2020.  Samningur Makuc við THW Kiel er til fjögurra ára frá árinu 2026. Þýski dagblaðið Sport...

HK fór með stigin tvö úr spennandi leik

HK lagði Selfoss í jöfnum og skemmtilegum leik, 34:33, í síðari viðureign annarrar umferðar Ragnarsmótsins á Selfossi í kvöld. HK-ingar voru marki yfir í hálfleik, 16:15. Leikmenn Selfoss voru mun sprækari í viðureigninni í kvöld en á mánudagskvöldið þegar...
- Auglýsing -

Haukar unnu FH-inga í Kaplakrika

Haukar höfðu betur í fyrsta Hafnarfjarðarslagnum á nýju keppnistímabili í kvöld þegar þeir mættu FH í fyrsta leik Hafnarfjarðarmótsins í handknattleik karla í Kaplakrika, 29:26. Eins oft áður þegar liðin leiða saman hesta sína var munurinn lítill. Haukar voru...

ÍBV lagði Víkinga á Ragnarsmótinu

ÍBV vann Víking, 26:23, í annarri umferð Ragnarsmótsins í handknattleik karla í Sethöllinni á Selfossi í kvöld. Eyjamenn voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 15:10. ÍBV hefur þar með þrjú stig eftir tvo leiki en Víkingur tvö. ÍBV mætir...

Stórleikur Birgis Steins dugði ekki – Arnar Birkir fagnaði sigri í Karlskrona

Stórleikur Birgis Steins Jónssonar nægði IK Sävehof ekki til sigurs á Tyresö í fyrsta leik liðanna í riðlakeppni sænsku bikarkeppninnar í handknattleik í kvöld. Tyresö, sem leikur í næst efstu deild, vann úrvalsdeildarliðið með tveggja marka mun, 39:37, á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -