- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Handboltahöllin: Fimmta tap ÍR í sex leikjum

Handboltahöllin á Handboltapassanum gerði 15. umferð Olísdeildar kvenna upp á mánudagskvöld. Öll umferðin fór fram síðastliðin fimmtudag og var stórleikur umferðarinnar leikur Hauka og ÍR í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Haukar unnu leikinn og sáu þannig til þess að ÍR...

Dagskráin: Leikir í báðum Olísdeildum

Síðari þrír leikir 16. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Umferðin hófst í gærkvöld með þremur hörkuleikjum. ÍBV lagði Selfoss, 40:28, FH hafði betur í heimsókn sinni til HK, 32:29, og KA sótti tvö stig í...

Handboltahöllin: Fyrsta sóknin ætlaði engan enda að taka

Í uppgjöri Handboltahallarinnar á Handboltapassanum á 15. umferð Olísdeildar kvenna á mánudagskvöld var stórsigur Vals á Selfossi tekinn fyrir. Fyrsta sókn leiksins virtist engan endi ætla að taka þar sem Hafdís Renötudóttir í marki Vals varði trekk í trekk. „Í...
- Auglýsing -

Einar Bragi og félagar eru áfram í efsta sæti

Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í IFK Kristianstad sóttu tvö stig í greipar IK Sävehof í gær, 26:24, þegar þráðurinn var tekinn upp í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik að loknum Evrópumótinu. Einar Bragi, sem skrifaði nýverið undir nýjan tveggja...

Óðinn Þór fékk frí frá fyrsta leik eftir EM

Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður í handknattleik fékk frí í gær til þessað kasta mæðinni eftir langa og stranga törn þegar Kadetten Schaffhausen mætti Handball Stäfa og vann örugglega, 44:31, á heimavelli í svissnesku A-deildinni í handknattleik.  Kadetten er efst í...

Valur vann síðasta undanúrslitasætið

Fjórða og síðasta sætið sem var óráðstafað í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik kemur í hlut Vals eftir 10 marka sigur liðsins á FH, 31:21, í Kaplakrika í kvöld. Fram, bikarmeistarar Hauka og KA/Þór verða auk Vals með nöfn...
- Auglýsing -

Sigurstund í suðri

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe fór ekki erindisleysu til suðurhluta Þýskalands í kvöld til að sækja Sport-Union Neckarsulm heim í 15. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Leikmenn liðsins fóru með tvö stig í pokahorninu heim eftir tveggja marka sigur, 29:27, eftir...

Baráttusigur FH-inga í Kórnum

FH vann baráttusigur á HK í Kórnum í kvöld, 32:29, í viðureign liðanna í 16. umferð Olísdeildar karla í handknattleik og halda þar með fjórða sætinu, stigi á eftir Haukum. HK er hins vegar áfram í 9. sæti deildarinnar...

Tólf marka sigur og gleðitíðindi hjá ÍBV

Eyjamenn tóku upp þráðinn þar sem frá var horfið í Olísdeild karla í handknattleik á heimavelli í kvöld með öruggum sigri á Selfossi, 40:28. ÍBV er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig en Selfoss er í 10. sæti. Hákon...
- Auglýsing -

Ágúst Elí hrósaði sigri í fyrsta leik sínum með KA

Ágúst Elí Björgvinsson lék sinn fyrsta deildarleik hér á landi í átta ár í kvöld þegar hann varði mark KA í sjö marka sigri á ÍR, 37:31, í fyrsta leik liðanna á nýju ári. Leikurinn fór fram í Skógarseli....

Tapað stig og toppsætið þar með úr sögunni í bili

Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigvaldi Björn Guðjónsson skoruðu eitt mark hvor fyrir Kolstad þegar liðið gerði jafntefli við Follo HK, 29:29, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikið var á heimavelli Follo, Stil Arena. Benedikt Gunnar átti einnig eina stoðsendingu. Sigurjón...

Krækir Rúnar í Palicka fyrir lokasprettinn?

Hermt er að Rúnar Sigtryggsson þjálfari Wetzlar hafi sænska markvörðinn Andreas Palicka undir smásjánni þessa dagana. Rúnar mun ekki slá á móti frábærum markverði fyrir lokasprettinn í þýsku úrvalsdeildinni og Palicka er sagður geta hugsað sér að kveðja norska...
- Auglýsing -

„Þegar útlendingur gerir eitthvað svipað fagna allir“

Zlatko Dalic, landsliðsþjálfari karlaliðs Króatíu í knattspyrnu, furðar sig á því að landar sínir séu í stórum stíl sammála gagnrýni Dags Sigurðssonar, þjálfara karlaliðs Króatíu í handknattleik, í garð skipulags Handknattleikssambands Evrópu á leikjadagskrá á Evrópumótinu. Dalic hafi sjálfur...

Gætu keypt eigin leikmann strax aftur

Upp er komin undarleg staða í máli þýska varnartröllsins Johannes Golla, sem hefur samþykkt að ganga til liðs við MT Melsungen frá SG Flensburg-Handewitt í sumar. Í samningi Golla við Melsungen er nefnilega ákvæði um að hægt sé að...

Handboltahöllin: Æsilegar lokamínútur

Handboltahöllin á Handboltapassanum gerði upp 15. umferð Olísdeildar kvenna á mánudagskvöld og fór þar yfir æsispennandi lokamínútur í leik ÍBV og Fram, sem lauk með 32:31 sigri Eyjakvenna. Rakel Dögg Bragadóttir, annar sérfræðinga Handboltahallarinnar, fór vandlega yfir lokamínúturnar þar sem...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -