Rasmus Lauge, sem varð Evrópumeistari með Danmörku fyrr í mánuðinum, hefur misst af fyrstu tveimur leikjum Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir EM-pásu þar sem hann er að glíma við meiðsli í baki.
Lauge, sem er 34 ára leikstjórnandi og sterkur...
Þýska félagið HSG Wetzlar hefur tilkynnt formlega um komu sænska markvarðarins Andreas Palicka frá norska félaginu Kolstad. Palicka fékk samningi sínum í Noregi rift og samdi út yfirstandandi tímabil hjá Wetzlar, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Um leið...
Markvörðurinn Grétar Ari Guðjónsson sneri nokkuð óvænt aftur heim til Hauka í byrjun ársins eftir margra ára dvöl í atvinnumennsku. Eftir fimm ár í Frakklandi samdi hann við AEK Aþenu síðasta sumar og skrifaði þá undir tveggja ára samning....
Átjánda umferð Olísdeildar karla í handknattleik hófst í gærkvöld með tveimur viðureignum. Áfram verður haldið veginn í kvöld þegar ÍR-ingar taka á móti Íslandsmeisturum Fram. HK og Þór eigast við í mikilvægum leik í fallbaráttunni í Kórnum og Stjarnan,...
„Það fyrsta sem kemur upp í hugann strax eftir leik er svekkelsi. Engu var líkara en við þyrðum ekki að vinna,“ sagði Hannes Höskuldsson markahæsti leikmaður Selfoss við handbolta.is eftir þriggja marka tap, 33:30, Selfossliðsins fyrir FH í Olísdeild...
Íslendingalið TTH Holstebro mátti gera sér eitt stig að góðu gegn Fredericia er liðin skildu jöfn, 29:29, í dramatískum leik í dönsku úrvalsdeild karla í Holstebro í kvöld. Holstebro virtist eiga sigurinn vísan en glutraði niður forskoti sínu undir...
FH vann þriðja sigur sinn í röð í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld er liðið lagði Selfoss, 33:30, í Kaplakrika í upphafsleik 18. umferðar. Sigurinn var torsóttur og það var ekki fyrr en á síðustu fimm mínútunum sem...
ÍBV hafði betur gegn Aftureldingu, 32:29, þegar liðin áttust við í 18. umferð Olísdeildar karla í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld. Með sigrinum fór ÍBV upp fyrir Aftureldingu.
ÍBV er nú í fjórða sæti með 23 stig og Afturelding er sæti...
Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig afar vel í sigri VfL Gummersbach á SG Flensburg-Handewitt á þriðjudagskvöld.
Elliði Snær skoraði átta mörk úr 11 skotum er Gummersbach vann 33:26. Er...
Ísak Steinsson átti sannkallaðan stórleik í marki Drammen þegar liðið heimsótti Fjellhammer og vann öruggan sigur, 30:24, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Ísak gerði sér lítið fyrir og varði 18 skot, þar af eitt vítakast. Var hann þannig með 43%...
Norska handknattleikssambandið hefur hóað saman í nefnd sem á að vega og meta starf Jonas Wille landsliðsþjálfara karla síðustu fimm ár. Samningur Wille rennur út í vor. Ekki verður tekin ákvörðun um hvort honum verði boðinn nýr samningur eða...
Ekki er víst að vináttulandsleikir Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla í næsta mánuði fari fram í Laugardalshöll. Hin aldna þjóðarhöll innanhússboltaíþrótta er bókuð fyrir aðra viðburði þá viku sem áformað er að landsleikirnir fari fram, þ.e. í landsliðsvikunni...
Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Dagur Máni Siggeirsson, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við handknattleiksdeild Stjörnunnar. Hann heldur þar með áfram að feta í fótspor foreldra og fleiri úr nærfjölskyldunni á handboltavellinum.
„Dagur hefur farið í gegnum allt yngri flokka starfið hjá...
Berta Rut Harðardóttir og liðsfélagar hennar í Kristianstad HK töpuðu fyrir IF Hallby, 34:29, í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í sænsku úrslitakeppninni í úrvalsdeildinni í Hallby í gærkvöldi.
Kristianstad er í áttunda sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina,...
Mikil ólukka dundi yfir tvo leikmenn HK í einni og sömu vörn þegar liðið tapaði 36:31 fyrir ÍR í Olísdeild karla á mánudagskvöld. Aron Dagur Pálsson fór þá úr axlarlið og hnéskel Leós Snæs Péturssonar fór nánast í sömu...