SG Flensburg-Handewitt tyllti sér í annað sæti þýsku 1. deildarinnar, að minnsta kosti tímabundið, með því að leggja GWD Minden nokkuð þægilega að velli, 35:31, á heimavelli í kvöld.
Flensburg er með 41 stig í öðru sæti, fimm stigum á...
Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í HSG Nordhorn-Lingen unnu nauman heimasigur á HC Elbflorenz 2006, 32:31, í þýsku B-deildinni í kvöld. Nordhorn eygir ennþá smávægilega von um að komast upp í efstu deild.
Nordhorn er í sjötta sæti með 32...
Íslendingalið Alpla Hard, sem Hannes Jón Jónsson þjálfar, vann sterkan útisigur á Aon Fivers, 28:26, í efstu deild karla í Austurríki í kvöld. Með sigrinum tyllti Alpla Hard sér á topp deildarinnar.
Alpla Hard er með 23 stig að loknum...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar karla í handknattleik sem hefst í kvöld, föstudaginn 27. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.
Leikir umspilsins verða sendir út á Handboltapassanum.
Undanúrslit:27. mars: Stjarnan...
Þýska félagið SG Flensburg-Handewitt er sagt vinna hörðum höndum að því að semja við bræðurna Kiko og Martim Costa auk föðurs þeirra, þjálfarans Ricardo. Feðgarnir eru allir samningsbundnir Sporting Lissabon til sumarsins 2030.
Danska vefsíðan Rygtebørs og þýska síðan RT...
Ungverska félagið Pick Szeged hefur tilkynnt um komu Marko Eklemovic frá Györi ETE-UNI FKC í sumar. Eklemovic er aðeins 18 ára gamall leikstjórnandi en er þrátt fyrir ungan aldur þegar orðinn lykilmaður hjá Györi og er hugsaður sem arftaki...
Aganefnd HSÍ fundar þessa dagana daglega ef þörf krefur á meðan úrslitakeppni Olísdeildar karla stendur yfir. Tveir leikmenn hlutu útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í fyrstu leikjum átta liða úrslitum úrslitakeppninnar og einn þjálfari hlaut útilokun.
Róbert Sigurðarson...
Andri Erlingsson, leikstjórnandi ÍBV, missti af síðasta leik liðsins og missir einnig af þeim næsta vegna meiðsla sem hann glímir nú við. Óttast er að hann spili ekki meira með liðinu í úrslitakeppni Olísdeildarinnar.
ÍBV er strax komið með bakið...
Lilja Ágústsdóttir handknattleikskona hjá Íslands- og bikarmeisturum Vals hefur samið við þýska efstu deildarliðið BSV Sachsen Zwickau frá og með næsta keppnistímabili. Félagið sagði frá væntanlegri komu Lilju í tilkynningu í dag.
Lilja, sem verður 22 ára 30. apríl, er...
Vegna veðurs og ófærðar hefur fyrstu viðureign Gróttu og Harðar í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla sem fram átti að fara í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í kvöld verið seinkað fram á sunnudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ. Áætlað...
„Ég og fjölskylda mín erum afar spennt fyrir að flytja til Barcelona og verða hluti af þessu stóra félagi,“ segir Janus Daði Smárason landsliðsmaður í handknattleik þegar handbolti.is heyrði í honum eftir að upplýst var í gær að Janus...
FH lagði Fram, 28:26, í hörkuleik í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Leikurinn fór fram í Kaplakrika. Næst mætast liðin í Lambhagahöll Fram á mánudagskvöld klukkan 19.30. Framarar verða að vinna þá viðureign...
Mikael Appelgren, markvörður sænska landsliðsins, reyndist því íslenska óþægur ljár í þúfu þegar liðin mættust í tveimur vináttulandsleikjum í síðustu viku.
Appelgren varði 18 skot í síðari leiknum í Kaplakrika, sem Svíþjóð vann 30:27, og varði níu skot er hann...
Kvennaliði Györi ETO KC gengur ekki einungis vel inni á vellinum, þar sem liðið er ríkjandi Evrópumeistari og ungverskur meistari og er að öðrum ólöstuðum sterkasta félagslið heims. Utan vallar er nefnilega mikið barnalán á meðal leikmanna liðsins.
Danski miðillinn...
Arnór Þór Gunnarsson, þjálfari Bergischer HC, stýrði sínum mönnum til afar mikilvægs sigurs í fallbaráttu þýsku 1. deildarinnar í kvöld. Bergischer heimsótti Einar Þorstein Ólafsson og félaga í HSV Hamburg og vann með minnsta mun, 35:34.
Bergischer er eftir sigurinn...