- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Aftur í efsta sæti

Ýmir Örn Gíslason og samherjar í Rhein-Neckar Löwen komust á nýjan leik í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar í dag með öruggum níu marka sigri á Balingen, 36:27, á heimavelli. Löwen var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16:14. Oddur Gretarsson...

Afar mikilvægur sigur í toppbaráttu

Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði tvö mörk þegar lið hennar, Volda, vann Grane Arendal, 26:24, á útivelli í dag í norsku B-deildinni í handknattleik. Volda-liðið lagði grunn að sigrinum í fyrri hálfleik þegar það yfirspilaði andstæðing sinn og var með...

Fjórða breytingin gerð á landsliðinu

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, hefur orðið að gera enn eina breytinguna á landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Litháen á miðvikudagskvöld í Laugardalshöll. Bjarki Már Elísson, hornamaður Lemgo og næst markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar nú um stundir, er...
- Auglýsing -

Knúinn til að hætta

Sænski landsliðsmaðurinn og leikmaður Füchse Berlin, Mattias Zachrisson, hefur ákveðið að hætta í handknattleik. Hann hefur átt í langvinnum meiðslum í vinstri öxl og því miður virðist ekki mikil von um að hann nái sér af þeim, alltént ekki...

Í undanúrslit bikarsins

Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten Schaffhausen komust í gærkvöld í undanúrslit í bikarkeppninni í Sviss þegar þeir lögðu St Gallen, 28:25, á útivelli í undanúrslitum keppninnar að viðstöddum 30 áhorfendum. Ekki máttu fleiri vera í keppnishöllinni að...

Erum nánast í heimasóttkví

„Við höfum sloppið fram að þessu eftir að deildarkeppnin hófst fyrir mánuði en förum tvisvar í viku í skimun. Annars erum við nánast í heimasóttkví. Það er ekki hægt að kalla það annað. Við gerum ekkert annað en að...
- Auglýsing -

Molakaffi: Hildigunnur og Arnór Þór í eldlínunni

Hildigunnur Einarsdóttir og samherjar í Leverkusen töpuðu naumlega fyrir Blomberg-Lippe, 27:26, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld.  Leikmenn Blomberg skoruðu tvö síðustu mörk leiksins en Leverkusen var marki yfir í jöfnum leik þegar tæplega tvær...

„Gott að eiga stórleik í mikilvægum sigri”

„Það er gott að komast almennilega í gang,“ sagði landsliðskonan í handknattleik, Díana Dögg Magnúsdóttir, við handbolta.is í dag eftir að hún átti stórleik með BSV Sachsen Zwickau í níu marka sigri liðsins á heimavelli á Kirchhof, 34:25, í...

Þriðji sigurinn á þremur dögum

Barcelona vann í dag sinn þriðja sigur á þremur dögum á handknattleiksvellinum þegar liðið sótti Cisne heim til vesturstrandar Spánar. Að vanda var sigurinn öruggur, lokatölur 43:27. Í hálfleik var sjö marka munur, 21:14, Barcelona í vil. Aron Pálmarsson var...
- Auglýsing -

Stórleikur Elvars Arnar nægði ekki

Stórleikur Elvars Arnar Jónsson dugði Skjern ekki til þess að leggja Danmerkurmeistara Aalborg Håndbold á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni. Eftir æsispennandi leik sem var jafn nánast frá upphafi til enda voru það leikmenn Álaborgarliðsins sem fóru með stigin tvö...

Íslendingarnir fóru á kostum

Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður, og Sveinn Jóhannsson fóru á kostum þegar þeir mættust með liðunum sínum, GOG og SönderjyskE, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. GOG vann leikinn örugglega, 35:27, og heldur öðru sæti deildarinnar stigi á eftir Aalborg...

Markaveisla í Varberg

Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk þegar IFK Kristianstad vann HK Varberg á útivelli, 39:29, í bráðfjörugum leik í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. IFK heldur þar með áfram efsta sæti deildarinnar. Liðið hefur nú 16 stig...
- Auglýsing -

Verðum að hugsa allt upp á nýtt

„Nú þarf maður bara aftur að hugsa út fyrir boxið,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals, í samtali við handbolta.is um þá stöðu sem komin er upp nú þegar æfingar eru óheimilar a.m.k. fram til 17. nóvember. „Staðan er...

Var á brattann að sækja

Það var á brattann að sækja hjá Íslendingaliðinu Vendsyssel í dag þegar það sótti efsta lið dönsku úrvalsdeildarinnar, Viborg, heim enda eru liðin hvort á sínum enda stöðutöflunnar. Frá upphafi var ljóst að um einstefnu yrði að ræða að...

Færri sendingar og þrír leikhlutar

Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari danska karlalandsliðsins, segir að fyrir löngu sé kominn tími til að skera upp herör gegn langdregnum sóknarleik margra liða. Oft standi sóknir yfir í hálfa aðra og jafnvel upp í tvær mínútur sem er óþolandi...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -