- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Leotar lagði ekki stein í götu Ísaks og félaga í Trebinje

Ísak Steinsson og liðsfélagar í norska úrvalsdeildarliðinu Drammen eru komnir í 16-liða úrslit Evrópbikarkeppninnar í handknattleik karla. Þeir unnu RK Leotar Trebinje í Bosníu í kvöld, 32:21, í síðari viðureign liðanna í 32-liða úrslitum. Drammen vann einnig fyrri viðureignina...

Úkraína fékk skell gegn Ungverjum í Tatabánya

Landslið Úkraínu, sem verður einni þriggja andstæðinga íslenska landsliðsins í F-riðli Evrópumóts kvenna í handknattleik, tapaði illa fyrir ungverska landsliðinu í síðari viðureign sinni á móti í Tatabánya í Ungverjalandi í kvöld, 38:19. Ungverjar fóru á kostum í fyrri...

Stórleikur Dags í Grikklandi nægði ekki

Stórleikur Dags Gautasonar nægði norska liðinu ØIF Arendal ekki til þess að tryggja sæti í 16-liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik í dag í annarri viðureigninni við gríska liðið Diomidis Argous í Nea Kios í Grikklandi. Diomidis Argous vann,...
- Auglýsing -

Hollendingar töpuðu fyrir Dönum í Kaupmannahöfn

Danir kætast yfir sigri á hollenska landsliðinu í síðustu umferð fjögurra þjóða æfingamóts í handknattleik kvenna í Kaupmannahöfn í dag. Í afar jöfnum og spennandi leik þá unnu Danir hollenska landsliðið, 32:30. Hollendingar verða fyrsti andstæðingur íslenska landsliðsins á...

Þjóðverjar mörðu Austurríki í Innsbruck

Þýska landsliðið, einn andstæðinga íslenska landsliðsins á væntanlegu Evrópumóti kvenna í handknattleik, vann austurríska landsliðið með tveggja marka mun, 28:26, í vináttulandsleik í Innsbruck í Austurríki í dag. Þjóðverjar þóttu ekki vera sannfærandi í leiknum, frammistaðan var kaflaskipt. Staðan...

Naumt tap í Schaffhausen í síðasta leiknum fyrir EM

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna tapaði síðari vináttuleiknum við landslið Sviss í Schaffhausen í dag, 29:28, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 12:9. Svissneska liðið komst yfir í fyrsta sinn eftir liðlega 55 mínútna leik, 27:26, og tókst...
- Auglýsing -

Heimamenn lögðu blátt bann við streymi

Til stóð að HSÍ streymdi í gegnum youtube-síðu sína síðari vináttulandsleik Sviss og Íslands í handknattleik kvenna frá BBC Arena í Schaffhausen kl. 15 í dag. Þegar til átti að taka og allt var uppsett fyrir útsendingu lagði handknattleikssamband...

Mæta landsliði Sviss í Schaffhausen

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna mætir svissneska landsliðinu í öðru sinni í dag í vináttulandsleik í BBC-Arena í Schaffhausen í Sviss. Leikurinn hefst klukkan 15. Til stóð að HSÍ streymdi leiknum en handknattleikssamband Sviss setti stólinn fyrir dyrnar á...

Handboltabúðirnar á Laugarvatni 8.- 11. júlí

Skráning er hafin á hinar geysivinsælu handboltabúðir á Laugarvatni. Undanfarin ár hefur selst upp á námskeiðið á örfáum vikum og því mikilvægt að tryggja sér sæti sitt sem allra fyrst.  Íþróttaakademía Íslands stendur fyrir handboltabúðum á Laugarvatni dagana 8.- 11....
- Auglýsing -

Molakaffi: Óðinn, Aron, Bjarki, Tumi, Guðmundur, Einar, Ýmir, Arnór, Viktor

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk, fjögur þeirra úr vítaköstum, í 14 marka sigri Kadetten Schaffhausen á RTV 1879 Basel, 41:27, í svissnesku A-deildinni í handknattleik karla í gærkvöld. Leikið var í Schaffhausen.  Óðinn Þór var fullkomna skotnýtingu í leiknum,...

Markastífla og tap hjá meisturum Magdeburg

Erfiðleikar þýska meistaraliðsins SC Magdeburg halda áfram. Eftir afleitan leik og tap fyrir RK Zagreb í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöld tapaði liðið illa fyrir Hannover-Burgdorf á útivelli í kvöld í þýsku 1. deildinni. Leikmenn Hannover-Burgdorf skoruðu fimm síðustu mörk...

Verða að bíta í skjaldarrendur á morgun

Dagur Gautason og félagar í norska úrvalsdeildarliðinu ØIF Arendal verða að bíta í skjaldarrendur á morgun þegar þeir mæta gríska liðinu Diomidis Argous öðru sinni í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik að loknu fjögurra marka tapi í fyrri...
- Auglýsing -

Selfyssingar tylltu sér í toppsætið – Víkingar lögðu Hörð

Selfoss fór upp í efsta sæti Grill 66-deildar karla í handknattleik með öruggum sigri á Fram2 í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal, 37:31, þegar áttunda umferð deildarinnar fór fram. Selfossliðið hefur þar með 12 stig eftir átta viðureignir að loknum fjórum...

Hollenska landsliðið var grátt leikið af því norska

Eftir stórsigur á rúmenska landsliðinu í fyrradag þá magalenti hollenska kvennalandsliðið í dag þegar það mætti norska landsliðinu á æfingamóti fjögurra landsliða í Holstebro í Danmörku. Norska landsliðið var nánast eitt á leikvellinum í síðari hálfleik og skoraði 21...

Eftir erfiðar tíu mínútu var þetta ágætur leikur

„Við byrjuðum illa. Fyrstu tíu mínúturnar voru erfiðar. Síðan náðum við keyra almennilega vörn á þær. Eftir það var þetta ágætur leikur,“ segir Elín Klara Þorkelsdóttir landsliðskona í handknattleik í samtali við HSÍ eftir fyrri vináttuleikinn við Sviss í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -