- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Myndskeið: Bjarki Már og félagar fögnuðu í Kaíró – Gísli og Ómar í úrvalsliðinu

Bjarki Már Elísson og samherjar í ungverska meistaraliðinu Veszprém unnu heimsmeistaramót félagsliða í handknattleik sem staðið hafði yfir í Kaíró í Egyptalandi í um vikutíma. Fjögur evrópsk félagslið tóku þátt í mótinu auk félagsliða frá Asíu, Ástralíu, Afríku og...

Bitter er síðasti leikmaður heimsmeistaranna 2007 sem rifar seglin

Hinn þrautreyndi þýski markvörður Johannes Bitter tilkynnti í morgun að hann væri hættur í handknattleik, skórnir og keppnisbúningurinn færi upp á hilluna góðu. Til stóð að Bitter hætti í sumar. Hann lét tilleiðast halda áfram og brúa bilið þangað...

KA bryddar upp á pallborði fyrir heimaleiki sína í vetur

KA bryddar upp á þeirri nýbreytni fyrir heimaleiki karlaliðsins í handknattleik í vetur að vera með pallborðsspjall en þá eru kallaðir til þjálfari Olísdeildarliðs félagsins ásamt þjálfara gestaliðsins. Pallborðið er opið fyrir áhorfendur. Þjálfarar liðanna, Halldór Stefán Haraldsson, KA, og...
- Auglýsing -

Stjarnan hefur samið við japanskan markvörð

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við japanskan markvörð, Aki Ueshima. Á hún að leika með kvennaliði félagsins í Olísdeildinni. Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu er Ueshima 23 ára gömul. Auk þess að leika handknattleik í heimalandinu hefur Ueshima leikið...

Handboltakvöld farið af stað í Handboltapassanum

(Frétttilkynning frá HSÍ)Handboltakvöld er umræðuþáttur um málefni líðandi stundar í þjóðaríþróttinni á Handboltapassanum. Fyrsti þátturinn kom inn á Handboltapassann í vikunni og verða þættirnir vikulega í vetur. Stjórnandi Handboltakvölds er Ingvar Örn Ákason og fyrstu gestir hans voru Einar...

Dagskráin: Þrjár deildir – fimm leikir

Fimm leikir verða á dagskrá Olísdeildar karla og kvenna og í Grill 66-deild kvenna í kvöld.Alla leikina verður hægt að sjá í Handboltapassanum. Einnig er upplagt að mæta á völlinn og styðja sitt lið. Leikir kvöldsins Olísdeild karla:Fjölnishöllin: Fjölnir - Stjarnan,...
- Auglýsing -

Fredericia HK er komið á kunnuglegar slóðir

Danska handknattleiksliðið Fredericia HK, sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar og tveir íslenskir handknattleiksmenn leika með, er komið á kunnulegar slóðir í dönsku úrvalsdeildinni eftir sigur á SönderjyskE á útivelli í gærkvöld, 30:29. Eftir tvo sigurleiki í röð er Fredericia...

Molakaffi: Drux hættur, Trtík fallinn frá, hagnaður í Álaborg

Þýski handknattleiksmaðurinn Paul Drux tilkynnti í fyrradag að hann sé tilneyddur að leggja skóna á hilluna, aðeins 29 ára gamall. Drux, sem er fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og fyrirliði Füchse Berlin, hefur átt í þrálátum meiðslum í hné um árabil....

Fyrsti sigur Hauka í höfn – Margrét er mætt til leiks

Haukar2 unnu í kvöld sinn fyrsta leik í Grill 66-deild kvenna þegar liðið lagði Berserki, 24:20, á Ásvöllum í annarri viðureign þriðju umferðar deildarinnar. Haukar voru sjö mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:7, en liðið var með yfirhöndina...
- Auglýsing -

Valur vann Aronslausa FH-inga – Afturelding kippti Fram niður á jörðina

Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara FH með sjö marka mun, 30:23, í Olísdeild karla í handknattleik í Kaplakrika í kvöld. Afar góður varnarleikur lagði grunn að sigrinum auk þess sem það veikti sannarlega FH-liðið að hafa...

Sigur sem vonandi ýtir okkur af stað

https://www.youtube.com/watch?v=zrpwnl3Rtu8 „Ég var ótrúlega ánægður með varnarleikinn og markvörsluna í kvöld. Þetta var allt annað en í leikjunum á undan. Við eigum ennþá inn í sóknarleiknum sem er eðlilegt vegna þess að við höfum einblínt á varnarleikinn síðustu daga,“ sagði...

Vorum í basli með sóknaleikinn allan tímann

https://www.youtube.com/watch?v=9XeMRn0C8xw „Við töpuðum bara í hörkuleik en engu að síður er ég ánægður með strákana. Við náðum góðum kafla í seinni hálfleik, jöfnuðum metin en misstum þá aftur frá okkur. Meðal annars misstum við Bernard út og þá riðlaðist leikur...
- Auglýsing -

Fyrsti sigur KA er staðreynd – Grótta upp í annað sæti

Eftir tap í fjórum fyrstu leikjum tímabilsins þá tókst KA-mönnum loksins að vinna leik í kvöld þegar þeir tóku á móti ÍR-ingum, lokatölur, 28:24. KA var þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11, og hafði frumkvæðið frá byrjun til enda....

Veszprém vann HM félagsliða í fyrsta sinn

Ungverska liðið Veszprém, sem Bjarki Már Elísson leikur með, varð í dag heimsmeistari félagsliða í handknattleik í fyrsta sinn í sögunni. Veszprém vann þýska meistaraliðið SC Magdeburg, 34:33, í framlengdum úrslitaleik í New Capital Sports Hall í Kaíró að...

Sjötti þægilegi sigurinn hjá Hauki og félögum

Áfram halda Haukur Þrastarson og samherjar hans í Dinamo Búkarest að vinna andstæðinga sína í rúmensku 1. deildinni í handknattleik á nokkuð þægilegan hátt. Í dag sótti Dinamo liðsmenn Odorheiu Secuiesc heim og vann með 11 marka mun, 36:25,...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -