- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Fyrsti sigur KA er staðreynd – Grótta upp í annað sæti

Eftir tap í fjórum fyrstu leikjum tímabilsins þá tókst KA-mönnum loksins að vinna leik í kvöld þegar þeir tóku á móti ÍR-ingum, lokatölur, 28:24. KA var þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11, og hafði frumkvæðið frá byrjun til enda....

Veszprém vann HM félagsliða í fyrsta sinn

Ungverska liðið Veszprém, sem Bjarki Már Elísson leikur með, varð í dag heimsmeistari félagsliða í handknattleik í fyrsta sinn í sögunni. Veszprém vann þýska meistaraliðið SC Magdeburg, 34:33, í framlengdum úrslitaleik í New Capital Sports Hall í Kaíró að...

Sjötti þægilegi sigurinn hjá Hauki og félögum

Áfram halda Haukur Þrastarson og samherjar hans í Dinamo Búkarest að vinna andstæðinga sína í rúmensku 1. deildinni í handknattleik á nokkuð þægilegan hátt. Í dag sótti Dinamo liðsmenn Odorheiu Secuiesc heim og vann með 11 marka mun, 36:25,...
- Auglýsing -

Hlynur og Ólafur fara til Evrópu í eftirlitsferð

Íslenskir eftirlitsmenn eru ekki síður en dómarar eftirsóttir á kappleiki Evrópumóta félagsliða í handknatleik. Tveir eftirlitsmenn verða við störf um helgina, annar í Austurríki og hinn í Svíþjóð.Hlynur Leifsson fer til Austurríkis á morgun og verður með eftirlit á...

Valur og Haukar leika gegn liðum sem mættust fyrir ári

Íslands- og bikarmeistarar Vals og Haukar leika í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik kvenna um helgina. Valur hélt af stað eldsnemma í morgun áleiðis til Litáen. Haukar fara af landi brott í fyrramálið til Belgíu. Bæði íslensku liðin seldu...

„Tekur sinn tíma að læra inn á stelpurnar“

Karen Knútsdóttir fyrrverandi landsliðs- og atvinnukona í handknattleik lék í gærkvöld í fyrsta sinn með Fram í Olísdeildinni síðan vorið 2022 þegar hún fagnaði Íslandsmeistaratitlinum. Karen steig inn á leikvöllinn þegar liðlega 20 mínútur voru liðnar af viðureign Fram...
- Auglýsing -

Dagskráin: Áfram haldið leik í 5. umferð

Fimmta umferð Olísdeildar karla hófst í gærkvöld með viðureign Hauka og HK á Ásvöllum. Liðin skildu með skiptan hlut, 29:29. Áfram verður haldið við kappleiki í 5. umferð í kvöld þegar fjórar viðureignir fara fram. Olísdeild karla:KA-heimilið: KA - ÍR,...

Molakaffi: Óðinn, Ágúst, Elvar, Arnór, Donni, Guðmundur, Elín, Viktor

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar Kadetten Schaffhaunsen vann Suhr Aarau, 42:31, áttundu umferðar A-deildar svissneska handknattleiksins í gær. Kadetten er efst í deildinni með 14 stig að loknum átta leikjum, er fjórum...

Aftur var Þorsteinn Leó markahæstur – Orri Freyr skoraði tíu í stórsigri

Mosfellingurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson heldur áfram að hrella markverðina í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik. Hann skoraði átta mörk í kvöld og var markahæstur leikmanna Porto þegar þeir sóttu Águas Santas Milaneza heim og unnu með 12 marka mun...
- Auglýsing -

Tveimur færri tókst HK að halda öðru stiginu

Þrátt fyrir að vera tveimur leikmönnum færri síðustu 20 sekúndur leiksins við Hauka þá tókst HK-ingum að vinna annað stigið á Ásvöllum í kvöld, stig sem þeir höfðu unnið fyrir með góðum endaspretti. Lokatölur 29:29. Haukar, sem hafa unnið...

Valur sótti tvö stig til Fram í Lambhagahöllina

Íslandsmeistarar Vals undirstrikuðu í kvöld að liðið er það besta í kvennahandknattleik hér á landi um þessar mundir með því að vinna Fram á sannfærandi hátt, 29:25, í fjórðu umferð Olísdeildarinnar í Lambhagahöllinni. Valur hefur þar með unnið fjóra...

Þýskaland – bikarkeppni kvenna og karla, úrslit, markaskor

Í kvöld var leikið í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í Þýskalandi og í 32-liða úrslitum í karlaflokki. Talsvert af íslensku handknattleiksfólki tók þátt í leikjunum. Helstu upplýsingar eru hér fyrir neðan.Bikarkeppni kvenna, 16 - liða úrslit:Blomberg - Solingen 30:23...
- Auglýsing -

Eitt mark á 25 mínútum – stórsigur Hauka

Haukar fóru illa með Gróttu í upphafsleik í 4. umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld og unnu með 19 marka mun á heimavelli, 30:11, eftir að hafa verð níu mörkum yfir í hálfleik, 16:7. Haukar hafa þar með sex...

Sjö mörk í röð hjá HK sem þar með er afgerandi efst

HK náði í kvöld þriggja stiga forskoti í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik eftir sigur á Aftureldingu, 24:20, í upphafsleik þriðju umferðar deildarinnar í Kórnum í Kópavogi. HK er þar með áfram taplaust og með þriggja stiga...

Arnar Birkir markahæstur – ýmist tap eða sigur hjá Íslendingum

Arnar Birkir Hálfdánsson og samherjar í Amo HK færðust upp í fimmta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld eftir nauman sigur á Guif á heimavelli, 36:35. Arnar Birkir var markahæstur við annan mann með sjö mörk hjá Amo....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -