Ísland verður í riðli með Evrópumeisturum Spánar á Evrópumóti karla í handknattleik sem fram fer í Rúmeníu í sumar. Þetta varð ljóst þegar dregið var í riðla keppninnar í dag. Auk þess eiga landslið Austurríkis og Lettlands sæti í...
Ísland dróst í riðil með Ungverjalandi, Sviss og Svartfjallalandi í lokakeppni Evrópumóts 18 ára landsliða karla sem fram fer í Belgrad í Serbíu frá 29. júlí til 9. ágúst í sumar. Dregið var eftir hádegið í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu...
Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested þjálfarar 18 ára landsliðs kvenna hefur valið hóp til æfinga 3. - 8. mars. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en nánara skipulag mun koma inn á Abler þegar nær dregur.
Hópurinn sem Grétar...
Halldór Stefán Haraldsson þjálfari 20 ára landsliðs kvenna hefur valið hóp til æfinga 2.- 7.mars. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en nánara skipulag mun koma inn á Abler þegar nær dregur, segir í tilkynningu HSÍ.
Hópurinn sem Halldór Stefán...
Liðnar eru rúmar þrjár vikur síðan Evrópumótinu í handknattleik karla lauk. Handknattleikssamband Evrópu er öðru hverju að rifja upp eftirminnilegar stundir frá Evrópumótinu. M.a. hafa þeir sett saman myndskeið með nokkrum frábærum markvörslum landsliðsmarkvarðarins Viktors Gísla Hallgrímssonar. Eitt tilþrifanna...
Michael Apelgren hefur valið sænska landsliðshópinn sem mætir íslenska karlalandsliðinu í tveimur vináttuleikjum sem fram fara hér á landi 19. og 21. mars. Enn þá hefur handbolti.is ekki fengið staðfest hvar leikirnir fara fram en sænska handknattleikssambandið segir í...
Sara Dögg Hjaltadóttir, leikstjórnandi ÍR, var á dögunum valin í A-landsliðið í fyrsta sinn fyrir tvo leiki gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. „Líðanin er mjög góð. Mér finnst ótrúlega gaman að fá tækifærið,“ segir Sara Dögg í samtali...
Sara Dögg Hjaltadóttir, markahæsti leikmaður Olísdeildar, er á meðal 18 leikmanna sem Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, valdi í landsliðshóp sinn vegna leikja við Svartfjallaland í undankeppni EM 4. og 8. mars.
Margir söknuðu Söru Daggar í landsliðshópnum sem...
Ekki er víst að vináttulandsleikir Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla í næsta mánuði fari fram í Laugardalshöll. Hin aldna þjóðarhöll innanhússboltaíþrótta er bókuð fyrir aðra viðburði þá viku sem áformað er að landsleikirnir fari fram, þ.e. í landsliðsvikunni...
Skemmtilegt innslag frá heimkomu karlalandsliðsins í handknattleik, eða handknattleiksflokksins, frá heimsmeistaramótinu 1961 er að finna í Mannlega þættinum sem sendur var út á Rás 1 í gærmorgun, mánudag. Í innslaginu, sem er rúmlega átta mínútna langt, er m.a. viðtal...
Karlalandsliðið í handknattleik hækkar um tvö sæti á milli ára á styrkleikalista Handknattleikssambands Evrópu. Ísland situr í sjöunda sæti þegar árangur landsliðsins á EM 2026 hefur verið tekinn með í reikninginn. Við útreikningana er litið til árangurs á fjórum...
Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi frá 13. til 31. janúar á næsta ári. Dregið verður í riðla miðvikudaginn 10. júní í Hofbräuhaus í miðborg München. Kosturinn...
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, segir nauðsynlegt að kom á fót nýju B-landsliði en slíkt lið hefur ekki verið fyrir hendi um árabil vegna fjárskorts Handknattleikssambandsins. Að mati Snorra þarf að vera virkt B-landslið sem nýti „landsliðsgluggana“...
Vika er liðin síðan karlalandsliðið lék um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handknattleik karla. Því miður tapaði íslenska landsliðið fyrir króatíska landsliðinu, 34:33, í hörkuleik í Jyske Bank Boxen í Herning á Jótlandi. Ísland hefur ekki komist nær verðlaunum á...
„Það er rétt að stíga varlega til jarðar og vera ekki með of miklar yfirlýsingar í fjölmiðlum,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik í viðtali við handbolta.is spurður hvort hann vilji halda áfram en samningur hans við HSÍ...