- Auglýsing -
- Auglýsing -

A-landslið kvenna

- Auglýsing -

Landsliðshópurinn hefur verið valinn

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið 16 leikmenn til þess að taka þátt í tveimur síðustu leikjum íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins 8. og 12. apríl, gegn Færeyingum ytra og Portúgal hér heima. Harpa María Friðgeirsdóttir leikmaður Fram...

Beint: Arnar velur landsliðið fyrir tvo síðustu leikina

Handknattleikssambandið stendur fyrir blaðamannafundi klukkan 13 í húsnæði Arion banka í Borgartúni. Á fundinum tilkynnir Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, landsliðshópinn sem hann hefur valið til þess að mæta Færeyingum og Portúgölum í tveimur síðustu umferðum undankeppni Evrópumóts...

Arnar kynnir landsliðshópinn fyrir síðustu leikina í undankeppni EM

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik tilkynnir í dag hvaða konur hann hefur valið til þess að taka þátt í tveimur síðustu viðureignum landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins, annars vegar gegn Færeyingum ytra 8. apríl og hins vegar við Portúgal...
- Auglýsing -

„Týpískt vinnuslys hjá markvörðum“

„Ég verð mætt aftur á völlinn áður en fólk nær að sakna mín of mikið,“ sagði Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og íslenska landsliðsins í handknattleik, við handbolta.is fyrr í dag þegar forvitnast var um heilsufar hennar í kjölfar hálsmeiðsla...

Katrín Tinna er á batavegi eftir höfuðhögg

Útlit er fyrir að landsliðskonan og leikmaður ÍR, Katrín Tinna Jensdóttir, sé á batavegi eftir að hafa fengið þungt högg á gagnaugað í fyrri landsleik Íslands og Svartfjallalands í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í síðustu viku. Hún segir við...

Stigum framfaraskref þegar á heildina er litið

„Ég tek með mér úr þessum tveimur leikjum við Svartfellinga 100 mjög góðar mínútur af 120. Ég held að það sé enginn vafi á að við vorum að stíga framfaraskref þegar á heildina er litið,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari...
- Auglýsing -

Tuttugu mínútna martröð í Podgorica

Íslenska landsliðið tapaði með níu marka mun, 33:24, fyrir Svartfellingum í síðari viðureign þjóðanna í undankeppni EM kvenna í handknattleik í Podgorica í kvöld. Tuttugu síðustu mínútur leiksins voru martröð hjá íslenska liðsins. Rúmlega 12 mínútur án marks kippti...

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

Undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik 2026 hófst miðvikudaginn 15. október 2025 og lýkur sunnudaginn 12. apríl 2026. Leikið er í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja sæti tryggja...

Mæta Svartfellingum í Podgorica síðdegis

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna mætir svartfellska landsliðinu öðru sinni í undankeppni Evrópumótsins í dag í Bemax Arena í Podgoria, höfuðborg Svartfjallalands. Flautað verður til leiks klukkan 17. Viðureignin er ein af átta í undankeppninni í dag. Landsliðið hefur verið...
- Auglýsing -

Hafdís fer ekki til Svartfjallalands

Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og landsliðsins í handknattleik, kemur ekki til móts við landsliðið í Podgorica í Svartfjallalandi eins og hugmyndir voru uppi um í gærkvöld. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari staðfesti þetta við handbolta.is í kvöld. Hafdís fékk boltann í höfuðið...

Obbu var þakkað tveggja áratuga starf með kvennalandsliðinu

Obba, eða Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, liðsstjóri kvennalandsliðsins í handknattleik til tveggja áratuga, var heiðruð af HSÍ í gærkvöld áður en viðureign Íslands og Svartfjallalands hófst á Ásvöllum. Obba var kölluð fram á keppnisgólfið. Jón Halldórsson formaður og Alfa Brá...

Ethel Gyða kölluð út í hasti rétt fyrir brottför til Svartfjallalands

Ethel Gyða Bjarnasen markvörður Fram var kölluð inn í landsliðið í handknattleik kvenna í kvöld. Ethel Gyða, sem er nýliði í landsliðinu, kemur inn í stað Hafdísar Renötudóttur sem fékk boltann á höfuðið í sigurleiknum við Svartfellinga á Ásvöllum...
- Auglýsing -

Myndasyrpa frá sigrinum á Svartfellingum í kvöld

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann frækinn sigur á Svartfellingum, 28:27, í 3. umferð undankeppni Evrópumóts kvenna í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld. Þar með komst íslenska liðið inn á sporið á nýjan leik á leið sinni að lokakeppni...

Óvissa með Katrínu Tinnu og Hafdísi

Óvissa ríkir um hvort Katrín Tinna Jensdóttir og Hafdís Renötudóttir geti tekið þátt í næsta leik íslenska landsliðsins gegn Svartfjallalandi í Podgorica á sunnudag. Báðar fengu þær höfuðhögg í fræknum 28:27 sigri á Svartfellingum í undankeppni EM 2026 á...

„Ótrúlega gaman“ í eftirminnilegum fyrsta keppnisleik

„Líðanin er ótrúlega góð. Þetta var ógeðslega gaman og frábær leikur,“ sagði Sara Dögg Hjaltadóttir í samtali við handbolta.is eftir glæsilegan eins marks sigur Íslands á Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026 á Ásvöllum í kvöld. Sara Dögg lék sinn...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -