Andri Már Rúnarsson, Viggó Kristjánsson og samherjar í HC Erlangen fengu annað stigið úr heimsókn sinni til Eisenach í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 25:25. Eisenach var þremur mörkum yfir í hálfleik, 13:10. Bæði lið þurftu á...
Viktor Gísli Hallgrímsson fór hamförum í marki Barcelona þegar liðið lagði RK Zagreb einkar örugglega að velli, 46:26, í 12. umferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Íslendingalið Magdeburg gerði þá jafntefli við Wisla Plock í Póllandi, 29:29, þar sem...
Elvar Ásgeirsson átti frábæran leik fyrir Ribe-Esbjerg þegar liðið heimsótti lærisveina Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni og hafði öruggan sigur, 39:31, í kvöld.
Elvar skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og var markahæstur allra í leiknum. Auk...
Tobias Grøndahl, leikmaður Füchse Berlín, talar ekki undir rós þegar hann er spurður út í fjárhagsvandræði norska Íslendingaliðsins Kolstad. Norðmaðurinn Grøndahl lék um fimm ára skeið með erkifjendum Kolstad í Elverum.
„Hjarta mitt slær fyrir Elverum og satt að segja...
„Goggi er búinn að vera hér í mörg, mörg ár. Fyrir mér er hann besti þjálfari í heimi,“ sagði Christoph Schindler framkvæmdastjóri Gummersbach í myndbandi á vegum félagsins þar sem hann svaraði spurningum frá stuðningsmönnum, m.a. um framtíð þjálfarans...
Bjarki Már Elísson leikur ekki með ungverska meistaraliðinu One Veszprém næsta mánuðinn vegna meiðsla í hné. Félagið segir frá þessu en Bjarki Már mun hafa meiðst í viðureign One Veszprém og Kielce í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Vegna...
Elmar Erlingsson skoraði ekki mark en átti tvær stoðsendingar þegar Nordhorn vann Dessauer, 34:30, í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Nordhorn er í fjórða til fimmta sæti deildarinnar með 30 stig eftir 21 leiki. Bietigheim er efst með...
Sigvaldi Björn Guðjónsson var á meðal markahæstu manna þegar lið hans Kolstad tapaði 26:33 fyrir Nantes í 12. umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í Þrándheimi í kvöld. Þar með er Kolstad úr leik í Meistadeildinni á tímabilinu.
Fyrirliðinn Sigvaldi Björn skoraði...
Danska liðið GOG tryggði sér í kvöld sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla með því að gera jafntefli gegn Eurofarm Pelister frá Norður-Makedóníu, 28:28, í 12. umferð B-riðils í Danmörku í kvöld.
GOG er í sjötta...
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, leikmaður Fram og finnska landsliðsins, er að glíma við meiðsli á ökkla sem hafa haldið honum frá keppnisvellinum í síðustu tveimur leikjum Fram í Olísdeildinni.
Handkastið hefur eftir Einari Jónssyni þjálfara Fram að Þorsteinn Gauti hafi meiðst...
Haukur Þrastarson og Gísli Þorgeir Kristjánsson hafa gefið flestar stoðsendingar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Haukur er efstur og hefur verið það nánast frá fyrstu umferð. Hann hefur gefið 110 stoðsendingar í 22 leikjum. Gísli Þorgeir er nú...
Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon var í liði 22. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Ómar Ingi lék afar vel og skoraði átta mörk, aðeins eitt úr vítakasti, og var með fullkomna skotnýtingu í 17 marka sigri Magdeburg...
Orri Freyr Þorkelsson skoraði þrjú mörk í nítjanda sigri Sporting Lissabon í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Sporting lagði Avanca, 40:30, á útivelli og er efst í deildinni.
Bergischer HC, liðið sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, tapaði fyrir...
Þýska handknattleiksliðið Blomberg-Lippe, með landsliðskonurnar Andreu Jacbosen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur innanborðs, lauk riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld með jafntefli við ungverska liðið MOL Esztergom, 31:31, á heimavelli. Blomberg-Lippe hafnaði í þriðja sæti B-riðils 16-liða...
SC Magdeburg náði aftur fimm stiga forskoti á toppi þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið vann GWD Minden með 17 marka mun í GETEC Arena í Magdeburg, 38:21. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur leikmanna Magdeburg með átta mörk...