Sigurður Jefferson Guarino, línumaður HK, er í 18 manna landsliðshópi Bandaríkjanna sem mun taka þátt í æfingamóti, NORLYS Golden League, í Kaupmannahöfn frá 19. – 22. mars.
Sigurður lék sína fyrstu landsleiki fyrir Bandaríkin á þróunarmóti Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, í Búlgaríu...
Viggó Kristjánsson er í úrvalsliði 24. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir stórkostlega frammistöðu sína í 36:31 sigri HC Erlangen á GWD Minden á sunnudag.
Viggó skoraði 16 mörk úr 19 skotum og fékk hæstu mögulegu einkunn, 100 HPI stig, hjá...
Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik er orðaður við þýska handknattleiksliðið Flensburg á samfélagsmiðlum í dag. Hermt er að samningaviðræður standi yfir með það í huga að Viggó gangi til liðs við félagið sumarið 2027. Flensburg er um þessar mundir...
Sænski línumaðurinn Oscar Bergendahl hefur skrifað undir nýjan samning við Evrópumeistara SC Magdeburg í Þýskalandi. Nýi samningurinn gildir til loka tímabilsins 2027/28.
Bergendahl, sem er 31 árs og afskaplega sterkur varnarmaður, hefur leikið með Íslendingaliði Magdeburg frá því í febrúar...
Viggó Kristjánsson fór hamförum og skoraði 16 mörk úr 19 skotum í 36:31 sigri HC Erlangen á GWD Minden í þýsku 1. deildinni á sunnudaginn. Það er persónulegt met hjá Viggó, hann hafði aldrei fyrr skorað svo mörg mörk...
Elías Már Halldórsson lætur af störfum sem þjálfari karlaliðs Ryger Stavanger í sumar og tekur þá við þjálfun varaliðs kvennaliðs Storhamar HE.
Ryger frá Stafangri leikur í norsku B-deildinni, er þar í botnsæti og virðist fátt geta komið í veg...
Birgir Steinn Jónsson var í leikmannahópi IK Sävehof í gærkvöld þegar liðið vann Amo HK á heimavelli, 35:33, í 24. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Birgir Steinn skoraði ekki mark í sigurleiknum. IK Sävehof er í fimmta sæti með 29 stig...
Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Göppingen unnu Eisenach á heimavelli, 28:25, í 24. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Með sigrinum færðist Göppingen upp í 10. sæti af 18 liðum deildarinnar með 20 stig, stigi fyrir...
Viktor Gísli Hallgrímsson varði fjögur skot á þeim skamma tíma sem hann stóð í marki Barcelona í gær í 11 marka sigri liðsins á Granollers, 42:31, í 20. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Emil Nielsen, markvörður...
Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar í Sporting Lissabon hafa átt annasama helgi. Þeir unnu Águas Santas/Milaneza í gær eins og áður hefur sagt frá og í dag lögðu þeir Gaia með 12 marka mun, 41:29, í viðureign sem...
Afar góður leikur Elmars Erlingssonar með HSG Nordhorn-Lingen í dag nægði ekki til þess að liðið næði að leggja Balingen-Weilstetten á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Balingen-menn unnu með fjögurra marka mun, 37:33, og halda áfram kapphlaupinu...
Íslenskir handknattleiksmenn voru í miklum ham með félagsliðum sínum í þýska handboltanum í dag. Þrír þeirra skoruðu samanlagt 38 mörk fyrir félagslið sín. Ákafastur þeirra var Viggó Kristjánsson sem skoraði 16 mörk í 19 skotum þegar HC Erlangen vann...
Einar Bragi Aðalsteinsson var valinn maður leiksins í gær þegar lið hans IFK Kristianstad vann Hammarby IF, 31:30, í uppgjöri liðanna í Stokkhólmi í gær. Einar Bragi skoraði sjö mörk og átti einnig stoðsendingar. Hann var vörn Hammarby-liðsins stöðug...
Ólafur Brim Stefánsson var næstmarkahæstur hjá Junior Fasano í jafntefli, 29:29, gegn Loacker Bozen Volksbank á heimavelli í gær í ítölsku A-deildinni í handknattleik. Ólafur Brim skoraði fimm mörk. Junior Fasano var þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13. Liðið...
Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði átta mörk þegar lið hans, FC Porto, gerði jafntefli við Benfica, 29:29, í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Lissabon. Porto var marki yfir í hálfleik, 15:14. Þorsteinn Leó var markahæstur...