- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Arnór stýrði Holstebro í úrslitakeppnina

Íslendingalið TTH Holstebro tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitakeppni um danska meistaratitilinn með því að leggja Bjerringbro-Silkeborg örugglega að velli, 36:32, í 24. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í Holstebro í kvöld. Arnór Atlason er þjálfari Holstebro og Jóhannes...

Einar Bragi og félagar töpuðu óvænt

IFK Kristianstad, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar, hljóp á sig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli fyrir OV Helsingborg, 32:33, í næstsíðustu umferð deildarinnar í kvöld. Helsingborg berst í bökkum í neðri hluta deildarinnar. Aðeins eru tveir sólarhringar...

Íslendingaliðin töpuðu í Meistaradeildinni

Íslendingalið Kolstad frá Noregi og ungverska liðið One Veszprém töpuðu heimaleikjum sínum í lokaumferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í kvöld. Kolstad var þegar úr leik og hafnar í botnsæti riðilsins en Veszprém er komið í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar,...
- Auglýsing -

Viggó í einstakan hóp með 16 marka leiknum

Stórleikur landsliðsmannsins Viggós Kristjánssonar með HC Erlangen gegn GWD Minden í þýsku 1. deildinni í handknattleik hefur komið honum í einstakan hóp handknattleiksmanna í þýsku 1. deildinni. Viggó skoraði 16 mörk í leiknum. Hann varð þar með 15. handknattleiksmaðurinn...

Viktor mjög öflugur í stórsigri – Magdeburg tapaði í París

Barcelona varð í efsta sæti B-riðils Meistaradeildar karla í handknattleik en keppni í riðlinum lauk í gærkvöld. Evrópumeistarar SC Magdeburg töpuðu öðrum leiknum í röð og höfnuðu í öðru sæti. Barcelona og Magdeburg voru fyrir nokkru búin að tryggja...

Elín Klara og Lena Margrét á sigurbraut í Svíþjóð

Deildarmeistarar IK Sävehof héldu sigurgöngu sinni áfram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar þráðurinn var tekinn upp í deildinni í kvöld að loknu tveggja vikna hléi vegna landsleikja. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sex mörk, þrjú þeirra úr vítaköstum, í...
- Auglýsing -

Ísak tapaði á heimavelli – Döhler fór á kostum í grannaslag

Ísak Steinsson landsliðsmarkvörður og liðsfélagar hans í Drammen HK töpuðu fyrir Bergen Håndball, 36:31, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í gær. Ísak varði fimm skot, þar af eitt vítakast, og var með 15% hlutfallsmarkvörslu þann tíma sem hann stóð...

Sigurður í bandaríska landsliðshópnum

Sigurður Jefferson Guarino, línumaður HK, er í 18 manna landsliðshópi Bandaríkjanna sem mun taka þátt í æfingamóti, NORLYS Golden League, í Kaupmannahöfn frá 19. – 22. mars. Sigurður lék sína fyrstu landsleiki fyrir Bandaríkin á þróunarmóti Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, í Búlgaríu...

Viggó í liði umferðarinnar með hæstu einkunn

Viggó Kristjánsson er í úrvalsliði 24. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir stórkostlega frammistöðu sína í 36:31 sigri HC Erlangen á GWD Minden á sunnudag. Viggó skoraði 16 mörk úr 19 skotum og fékk hæstu mögulegu einkunn, 100 HPI stig, hjá...
- Auglýsing -

Viggó er orðaður við Flensburg

Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik er orðaður við þýska handknattleiksliðið Flensburg á samfélagsmiðlum í dag. Hermt er að samningaviðræður standi yfir með það í huga að Viggó gangi til liðs við félagið sumarið 2027. Flensburg er um þessar mundir...

Svíinn sterki áfram hjá Íslendingaliðinu

Sænski línumaðurinn Oscar Bergendahl hefur skrifað undir nýjan samning við Evrópumeistara SC Magdeburg í Þýskalandi. Nýi samningurinn gildir til loka tímabilsins 2027/28. Bergendahl, sem er 31 árs og afskaplega sterkur varnarmaður, hefur leikið með Íslendingaliði Magdeburg frá því í febrúar...

Viggó ekki sáttur þrátt fyrir persónulegt met

Viggó Kristjánsson fór hamförum og skoraði 16 mörk úr 19 skotum í 36:31 sigri HC Erlangen á GWD Minden í þýsku 1. deildinni á sunnudaginn. Það er persónulegt met hjá Viggó, hann hafði aldrei fyrr skorað svo mörg mörk...
- Auglýsing -

Elías Már söðlar um í Noregi

Elías Már Halldórsson lætur af störfum sem þjálfari karlaliðs Ryger Stavanger í sumar og tekur þá við þjálfun varaliðs kvennaliðs Storhamar HE. Ryger frá Stafangri leikur í norsku B-deildinni, er þar í botnsæti og virðist fátt geta komið í veg...

Hörð barátta um síðustu sætin í úrslitakeppninni

Birgir Steinn Jónsson var í leikmannahópi IK Sävehof í gærkvöld þegar liðið vann Amo HK á heimavelli, 35:33, í 24. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Birgir Steinn skoraði ekki mark í sigurleiknum. IK Sävehof er í fimmta sæti með 29 stig...

Mikilvægur sigur á heimavelli hjá Ými Erni

Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Göppingen unnu Eisenach á heimavelli, 28:25, í 24. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Með sigrinum færðist Göppingen upp í 10. sæti af 18 liðum deildarinnar með 20 stig, stigi fyrir...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -