Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Alfa Brá gengur til liðs við Evrópudeildarmeistarana

Landsliðskonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur samið við þýska 1. deildarliðið Thüringer HC. Tekur samningurinn gildi í sumar og kveður hún þar með Fram sem hún hefur leikið með undanfarin þrjú ár. Alfa Brá fylgir í kjölfar unnusta síns,...

Ólafur Andrés yfirgefur HF Karlskrona

Handknattleiksmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson kveður sænska úrvalsdeildarliðið HF Karlskrona þegar keppnistímabilið verður úti í vor. Félagið tilkynnti þetta í gær. Ólafur Andrés kom til félagsins fyrir þremur árum. Meiðsli hafa sett töluvert strik í reikninginn hjá Ólafi Andrési á...

Anton Gylfi og Jónas dæma í Finnlandi

Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru á leiðinni til Finnlands þar sem þeir eiga fyrir höndum að dæma viðureign Finnlands og Svartfjallalands í forkeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla í Vantaa, skammt utan við Helsinki á morgun. Um er...
- Auglýsing -

Elmar verður úr leik næstu þrjár til sex vikur

Elmar Erlingsson handknattleiksmaður hjá þýska liðinu Nordhorn-Lingen verður úr leik í þrjár til sex vikur vegna höggs sem hann fékk á aðra öxlina í viðureign Nordhorn og Potsdam síðasta föstudag. Elmari var hrint er hann var í opnu færi....

Þorsteinn Gauti getur ekki spilað með Finnlandi

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, leikmaður Fram, hefur neyðst til þess að draga sig úr finnska landsliðshópnum vegna ökklameiðsla sem hann hefur glímt við undanfarinn rúman mánuð. Finnland á fyrir höndum tvo mikilvæga leiki gegn Svartfjallalandi í forkeppni HM 2027, þann fyrri...

Sigvaldi Björn hefur samið við Hannover-Burgdorf

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, flytur til Þýskalands í sumar. Hann hefur samið við Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni og er ætlað að fylla skarð hægri hornamannsins og fyrirliðans, Marius Steinhauser, sem ákveðið hefur að gerast liðsmaður Rhein-Neckar...
- Auglýsing -

Alfreð vill gjarna framlengja í Þýskalandi

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, fer ekki í grafgötur með það að hann vilji halda starfi sínu áfram eftir HM 2027 í Þýskalandi. Samningur Alfreðs rennur út eftir mótið í lok janúar á næsta ári. „Ég hef aldrei farið leynt...

Skemmtilegasta sem maður gerir er að spila handbolta

„Eftir krefjandi byrjun þá er maður kominn á fulla ferð. Ég reyni bara að nýta hvert tækifæri sem gefst sem best til þess að bæta mig,“ segir Reynir Þór Stefánsson leikmaður sem hefur verið í vaxandi hlutverki hjá þýska...

Döhler flytur á ný til Svíþjóðar

Þýski markvörðurinn Phil Döhler sem lék í fjögur ár við góðan orðstír með FH hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Amo HK. Tekur samningurinn gildi í sumar og tekur til næstu þriggja ára, út leiktíðina í sumarbyrjun 2029. Döhler þekkir vel...
- Auglýsing -

Leiktíðinni lokið hjá Dönu Björgu vegna meiðsla

Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik meiddist í leik með Volda í norsku 1. deildinni í gær. Útlit er fyrir að hún leiki ekki fleiri leiki á keppnistímabilinu með liðinu. Þar með verður hún ekki með íslenska landsliðinu í...

Framkvæmdastjóri Veszprém hótar leikmönnum hörðum refsingum

Csaba Bartha, framkvæmdastjóri ungverska handknattleiksfélagsins One Veszprém HC, hótar því að refsa leikmönnum karlaliðsins tapi það fleiri leikjum á tímabilinu. Veszprém, sem Bjarki Már Elísson leikur með, hefur leynt og ljóst stefnt að því að vinna Meistaradeild Evrópu um árabil...

Molakaffi: Dana, Ísak, Sigvaldi, Benedikt, Elías, Sigurjón, Árni, Viktor

Dana Björg Guðmundsdóttir fyrirliði Volda skoraði þrjú mörk fyrir liðið í tíu marka sigri á Glassverket, 33:23, á útivelli í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Volda færðist upp í 5. sæti deildarinnar og er tveimur stigum frá...
- Auglýsing -

Orri Freyr var óstöðvandi í bikarsigri

Orri Freyr Þorkelsson landsliðsmaður í handknattleik átti enn einn stórleikinn með Sporting Lissabon í kvöld þegar liðið vann Belenenses, 46:28, á heimavelli í 8-liða úrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik. Orri Freyr skoraði 10 mörk og var markahæsti leikmaður vallarins. Bræðurnir...

Magdeburg er áfram með örugga forystu eftir nauman sigur

SC Magdeburg heldur áfram öruggri forystu í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir nauman sigur á harðskeyttum leikmönnum Bergischer HC í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf í dag, 27:25. Magdeburg hefur sjö stiga forskot í efsta sæti þegar níu...

Lena Margrét fer heim frá Skövde með silfurverðlaun

Lena Margrét Valdimarsdóttir og stöllur hennar í sænska liðinu Skara HF töpuðu fyrir Boden Handboll IF, í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar í dag, 33:32. Úrslit leiksins voru knúin fram í bráðabana með hraðaupphlaupum en jafnt var eftir 60 mínútna leik...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -