Birgir Steinn Jónsson og félagar hjá IK Sävehof eru komnir í vænlega stöðu í rimmu sinni við Hammarby eftir annan sigur í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, 28:26, á heimavelli í kvöld. Þriðja viðureign liðanna fer fram...
Arnór Atlason og lærisveinar í TTH Holstebro töpuðu fyrir Mors-Thy í fyrstu umferð úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld, 33:31. Staðan var jöfn í hálfleik, 16:16, í Thy Hallen á Jótlandi.
Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk...
Haukur Þrastarson leikmaður Rhein-Neckar Löwen er aðra vikuna í röð í liði umferðarinnar í þýsku 1. deildinni í handknattleik, en 27. umferðinni lauk í gær, m.a. með viðureign Rhein-Neckar Löwen og HC Erlangen sem fyrrnefnda liðið tapaði 29:27.
Tapið fyrir...
Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, verður leikmaður SG Flensburg-Handewitt frá og með sumrinu 2027 þegar samningur hans við HC Erlangen rennur sitt skeið á enda. Þetta var staðfest í samfélagsmiðlum Flensburg og HC Erlangen í morgun. Samningur Viggó við...
Viktor Gísli Hallgrímsson varði sex skot, 40%, er hann var annan hálfleikinn í marki Barcelona í stórsigri á Cajasol Ángel Ximénez P. Genil, 38:23, á útivelli í 23. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í fyrradag. Barcelona hefur sem...
Þrátt fyrir fjarveru Viggós Kristjánssonar þá unnu leikmenn HC Erlangen kærkominn sigur á Rhein-Neckar Löwen, 29:27, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Andri Már Rúnarsson beit í skjaldarrendur í fjarveru landa síns og skoraði fimm...
Bjarki Már Elísson lék í gær sinn fyrsta leik með One Veszprém eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla. Hann skoraði fjögur mörk í 12 marka sigri ungversku meistaranna á grannliðinu Balatonfüredi KSE, 32:20. Þetta var 21. sigur One Veszprém...
Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann HC Butel Skopje, 37:21, í úrslitakeppni liðanna í efri hluta í úrvalsdeildinni í Norður Makedóníu í gær. RK Alkaloid er í þriðja sæti af sex liðum.
Ólafur...
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF fóru vel af stað í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag. Þeir unnu Bjerringbro/Silkeborg á útivelli, 41:36, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 20:14.
Donni skoraði tvö...
Íslendingaliðið HSG Blomberg-Lippe varð í kvöld deildarmeistari í efstu deild þýska handknattleiksins eftir sigur á Dortmund á heimavelli, 33:31, í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Leikið var á heimavelli HSG Blomberg-Lippe, Sporthalle an der Ulmenallee. Þar með hefur Blomberg-Lippe...
Tryggvi Þórisson og liðsfélagar í Elverum voru ekki lengi að sleikja sárin eftir 12 marka tap fyrir Montpellier í Evrópudeildinni á þriðjudaginn. Þeir mættu til leiks í gær og innsigluðu norska meistaratitilinn annað árið í röð. Elverum vann Kristiansand...
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu þegar lið hennar, Skara HF, vann VästeråsIrsta HF, 30:27, í annarri viðureign liðanna í dag í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Leikið var í Västerås.
Skara HF hefur þar...
Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar í Benfica komust í undanúrslit portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik í gærkvöld með naumum sigri á Póvoa AC Bodegão, 35:34, á heimavelli.
Benfica mætir Águas Santas Milaneza í undanúrslitum sem leikin verða heima og að heima...
Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof standa vel að vígi eftir tvo sigurleiki á Skuru IK í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna. Í gærkvöld vann IK Sävehof aðra viðureign liðanna, 33:24, í Skuru og...
Sporting Lissabon, sem Orri Freyr Þorkelsson leikur með, og Janus Daði Smárason og liðsfélagar í Pick Szeged standa vel að vígi eftir að hafa unnið andstæðinga sína í fyrri leikjum útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld. Sporting lagði...