- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Sigurganga Gummersbach heldur áfram

Sigurganga Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik á árinu hélt áfram í kvöld þegar liðið lagði Bergischer HC, 39:30, í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf. Með sigrinum treysti Gummersbach stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar. Liðið er aðeins...

Hófu úrslitakeppnina á útivallarsigri

Birgir Steinn Jónsson var markahæstur leikmanna IK Sävehof er þeir hófu úrslitakeppnina í sænsku úrvalsdeildinni af miklum krafti í gær með sigri á Hammarby IF, 28:26. Leikið var í Stokkhólmi, á heimavelli Hammarby. Birgir Steinn, sem hafði hægt um sig...

Stórsigur í lokaumferðinni – úrslitakeppni framundan

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk og var með fullkomna skotnýtingu í stórstigi Kadetten Schaffhausen á RTV 1879 Basel, 45:29, í lokaumferð A-deildarinnar í Sviss í gærkvöld. Ekkert markanna skoraði Óðinn Þór úr vítaköstum. Kadetten Schaffhausen varð deildarmeistari með 50...
- Auglýsing -

Elín Klara og Lena Margrét unnu í fyrstu umferð

Deildarmeistarar IK Sävehof unnu Skuru IK, 26:23, á heimavelli í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna í kvöld. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Sävehof sem var...

Verður Arnór aðstoðarþjálfari danska landsliðsins?

Arnór Atlason aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins er sagður vera undir smásjá Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfara Evrópu- og heimsmeistara Danmerkur í handknattleik karla. Jacobsen leitar að aðstoðarmanni eftir að Henrik Kronborg lét af störfum fyrir síðustu helgi.Danski handboltamiðilinn HBold segir frá meintum...

Reynir og fleiri við kappleiki í Evrópu í kvöld

Reynir Stefánsson formaður dómaranefndar HSÍ verður eftirlitsmaður á fyrri viðureign IFK Kristianstad og króatíska liðsins RK Nexe í útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld. Leikurinn fer fram í Kristianstad Arena og hefst klukkan 16.45. Þrjár viðureignir til viðbótar fara...
- Auglýsing -

Haukur í liði umferðarinnar eftir stórleikinn í Mannheim

Haukur Þrastarson er í liði 26. umferðar í þýsku 1. deildinni eftir stórleik sinn með Rhein-Neckar Löwen á laugardaginn. Hann skoraði þá 15 mörk í 18 skotum og gaf auk þess átta stoðsendingar í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen...

Molakaffi: Katla, Stiven, Tjörvi, Sveinn, Árni, Elías

Katla María Magnúsdóttir var markahæst hjá Holstebro með sjö mörk þegar liðið vann SIK Viborg, 36:24, í síðustu umferð næstefstu deildar danska handknattleiksins í gær. Nokkuð er síðan Holstebro vann deildina og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á næsta...

Ýmir Örn hafði betur gegn Andra og Viggó

Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í FrishAuf! Göppingen lyftust upp í 9. sæti þýsku 1. deildarinnar í dag með sigri á HC Erlangen á heimavelli, 27:24. Ýmir Örn skoraði eitt mark í sigrinum sem var sanngjarn enda heimaliðið lengst...
- Auglýsing -

Einar Bragi bikarmeistari í Svíþjóð

Einar Bragi Aðalsteinsson varð sænskur bikarmeistari í dag með liði sínu IFK Kristianstad þegar liðið vann Ystads IF HF, 40:37, í úrslitaleik í Halmstad Arena. Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill Einars Braga með liðinu og reyndar aðeins í annað sinn...

Molakaffi: Viktor, Ólafur, Arnar

Markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson var ekki í leikmannahópi Barcelona þegar liðið vann stórsigur á Caserío Ciudad Real, 43:26, á heimavelli í 22. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Barcelona er með fullt hús stiga og er langefst...

Ísak og félagar gerðu út um vonir Kolstad

Ísak Steinsson og liðsfélagar í Drammen HK gerðu í gær endanlega út um meistaravonir Kolstad í norsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Drammen lagði Kolstad, 37:32, í Þrándheimi í 24. umferð af 26. Eftir leikinn munar fjórum stigum á Elverum...
- Auglýsing -

Íslendingarnir tylltu sér í efsta sætið

Blomberg-Lippe settist í gær í efsta sæti efstu deildar þýska handknattleiksins í framhaldi af öruggum sigri á SV Union Halle-Neustadt, 33:20, á útivelli í 19. og næstsíðustu umferð. Íslensku landsliðskonurnar þrjár hjá BLomberg-Lippe komu mikið við sögu í sigurleiknum...

Orri Freyr skoraði 11 mörk – tveir til læknis vegna megnrar stækju í klefa

Orri Freyr Þorkelsson skoraði þriðjung marka Sporting þegar liðið vann FC Porto, 33:30, í fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppni portúgalska handknattleiksins í kvöld. Hætt er við að leikurinn, sem hófst 20 mínútum síðar en til stóð, dragi dilk á eftir...

Myndskeið: Flugeldasýning hjá Hauki – áfram vinnur Gummersbach

Haukur Þrastarson lék lærisveina Rúnars Sigtryggssonar í HSG Wetzlar fremur grátt í kvöld. Hann skoraði 15 mörk í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen, 41:27. Auk markanna 15 þá gaf Selfyssingurinn átta stoðsendingar. Víst má telja að leikmenn HSG Wetzlar...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -