Birta Rún Grétarsdóttir og samherjar hennar í Fjellhammer voru í gær fyrstar til þess að vinna stig af Larvik á þessu keppnistímabili í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik og það á heimavelli Larvik. Leiknum lauk með jafntefli, 28:28. Með jafnteflinu...
„Ég orðinn góður núna og hef verið að auka æfingaálagið jafnt og þétt síðustu vikur. Ég fór í segulómun fyrir um fjórum vikum. Þar kom fram að gollurshússbólgan var á bak á burt,“ segir handknattleiksmaðurinn Reynir Þór Stefánsson í...
Viktor Lekve þjálfari færeyska úrvalsdeildarliðsins KÍF frá Kollafirði fór vel af stað í færeysku bikarkeppninni í gærkvöld. KÍF vann StÍF, 33:29, í Høllin á Skála, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17:13.
Leikmenn KÍF lögðu grunn að...
Áfram hélt sigurganga Evrópumeistara SC Magdeburg í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla í gær. Liðið lagði Eurofarm Pelister, meistaralið Norður Makedóníu, 36:26, í sjöttu umferð B-riðils, 36:26, á heimavelli.
14 íslensk mörk
Ómar Ingi Magnússon var markahæstur leikmanna Magdeburg með 10...
Arnór Atlason og liðsmenn hans í TTH Holstebro unnu mikilvægan sigur í gær er þeir lögðu Ribe-Esbjerg, 29:27, á útivelli í 9. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Liðin voru jöfn að stigum fyrir viðureignina í sjöunda til áttunda sæti....
Færeyski landsliðsmaðurinn Elias Ellefsen á Skipagøtu, leikmaður THW Kiel, reyndist leikmönnum Gummersbach erfiður á lokakaflanum í viðureign liðanna í kvöld. Hann skoraði tvö síðustu mörk leiksins og tryggði THW Kiel annað stigið, 25:25, í Schwalbe-Arena í Gummersbach.
Elliði Snær Viðarsson...
Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í One Veszprém tapaði með eins marks mun á heimavelli fyrir þýska meistaraliðinu Füchse Berlin, 32:31, á heimavelli í sjöttu umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld. Þetta er þriðja tap ungverska meistaraliðsins...
Orri Freyr Þorkelsson landsliðsmaður í handknattleik og félagar hans gerðu góða ferð til Þrándheims í kvöld og lögðu Kolstad með fjögurra marka mun í 6. umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu, 34:30. Orri Freyr skoraði fjögur mörk í sex skotum, þar...
Jafntefli var í fyrri viðureign IK Sävehof og Skara HF í átta liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í handknattleik kvenna í kvöld. Leikð var í Partille hvar þrjár íslenskar handknattleikskonur komu við sögu. Síðari viðureign liðanna fer fram í Skara...
Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson heldur áfram að gleðja handknattleiksunnendur með því að töfra upp úr hatti sínu skemmtilega tilþrif og glæsilega mörk.
Eitt þeirra skoraði hann í gær með Kadetten Schaffhausen gegn RK Partizan Belgrad í annarri umferð Evrópudeildarinnar. Markið...
Magdeburg varð í kvöld síðasta liðið til þess að komast í 16-liða úrslit þýsku bikarkeppninnar í handknattleik karla. Liðið sótti heim og lagði Dessau-Rosslauer HV 06, 44:34, eftir að hafa verið fjórum mörkum undir í hálfleik, 19:15.
Ómar Ingi Magnússon...
Hákon Daði Styrmisson var markahæstur og skoraði 10 mörk úr 13 skotum þegar Eintracht Hagen vann Eulen Ludwigshafen, 39:29, í 8. umferð þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í gær. Sex markanna skoraði Hákon Daði úr vítaköstum.
Eintracht Hagen situr í...
Handknattleiksmaðurinn Reynir Þór Stefánsson er orðinn gjaldgengur með þýska handknattleiksliðinu MT Melsungen. Hann gekk til liðs við félagið í sumar en félagaskipti hans hafa ekki gengið í gegn á milli handknattleikssambanda Íslands og Þýskalands fyrr en í síðustu viku,...
Ísak Steinsson markvörður og félagar hans Drammen unnu ØIF Arendal, 29:27, á heimavelli í gær í norsku úrvalsdeildinni. Ísak var í marki Drammen hluta leiksins og varði átta skot, þar á meðal eitt vítakast frá Degi Gautasyni leikmanni ØIF...
Evrópumeistarar SC Magdeburg eru áfram taplausir í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir átta leiki. Liðið átti ekki í teljandi vandræðum með að vinna stórsigur á neðsta liði deildarinnar, Leipzig, 36:23, í dag þegar liðin mættust á heimavelli Leipzig....