Viktor Gísli Hallgrímsson var í marki Barcelona annan hálfleikinn í sigri liðsins á Valladolid, 39:28, á útivelli í 17. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Viktor Gísli varði fimm skot, 22,7%. Barcelona hefur unnið alla leiki sína...
Þýska handknattleiksliðið Blomberg-Lippe vann sinn fyrsta leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld í Chambray í Frakklandi í kvöld gegn Chambray Touraine Handball, 31:27. Sigurinn nægir Blomberg-Lippe ekki til þess að leika sama leikinn og fyrir ári, þ.e. að komast...
Haukur Þrastarson skoraði sjö mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen þegar liðið lagði GWD Minden, 34:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Leikurinn fór fram í Minden. Eitt markanna skoraði Haukur úr vítakasti. Auk þess átti hann tvær stoðsendingar....
Með ævintýralega góðri frammistöðu í síðari hálfleik tryggði TMS Ringsted sér sæti í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar í handknattleik karla á morgun. TMS Ringsted lagði SönderjyskE, 35:32, í fyrri undanúrslitaleik keppninnar í dag eftir að hafa verið sex mörkum undir...
Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði sjö mörk og var með fullkomna nýtingu þegar RK Alkaloid vann HC Struga, 41:20, í 20. umferð úrvalsdeildarinnar í Norður Makedóníu í gær. Monsi var markahæstur leikmanna RK Alkaloid.
Þegar tvær umferðir eru eftir er...
Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sín fyrstu mörk fyrir FC Porto um langa hríð í gærkvöld þegar liðið vann Vitória SC, 29:19, á heimavelli í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik. Þorsteinn Leó tognaði á nára snemma í nóvember í Evrópuleik...
Katla María Magnúsdóttir og liðsfélagar Holstebro Håndbold færast stöðugt nær sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Holstebro hefur átta stiga forskot í fyrsta sæti 1. deildar þegar fimm umferðir eru eftir. Liðið vann Fredericia Håndboldklub, 24:21, á útivelli...
Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof hafa þriggja stiga forskot á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik eftir 17 umferðir með 30 stig. IK Sävehof vann Höörs HK H 65 með 11 marka mun á heimavelli í gær,...
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fimm mörk fyrir IFK Kristianastad þegar liðið vann Malmö, 33:29, á útivelli í viðureign tveggja efstu liða sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Eftir sigurinn hefur Kristianstad fimm stiga forskot í efsta sæti deildarinnar. Malmö...
Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk, eitt þeirra úr vítakasti, í fimmtánda sigurleik One Veszprém í ungversku 1. deildinni í handknattleik á heimavelli. One Veszprém lagði þá FTC-Green Collect (Ferencváros), 43:29, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í...
Þýska félagið HSG Wetzlar hefur tilkynnt formlega um komu sænska markvarðarins Andreas Palicka frá norska félaginu Kolstad. Palicka fékk samningi sínum í Noregi rift og samdi út yfirstandandi tímabil hjá Wetzlar, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Um leið...
Íslendingalið TTH Holstebro mátti gera sér eitt stig að góðu gegn Fredericia er liðin skildu jöfn, 29:29, í dramatískum leik í dönsku úrvalsdeild karla í Holstebro í kvöld. Holstebro virtist eiga sigurinn vísan en glutraði niður forskoti sínu undir...
Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa staðið sig afar vel í sigri VfL Gummersbach á SG Flensburg-Handewitt á þriðjudagskvöld.
Elliði Snær skoraði átta mörk úr 11 skotum er Gummersbach vann 33:26. Er...
Ísak Steinsson átti sannkallaðan stórleik í marki Drammen þegar liðið heimsótti Fjellhammer og vann öruggan sigur, 30:24, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Ísak gerði sér lítið fyrir og varði 18 skot, þar af eitt vítakast. Var hann þannig með 43%...
Berta Rut Harðardóttir og liðsfélagar hennar í Kristianstad HK töpuðu fyrir IF Hallby, 34:29, í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í sænsku úrslitakeppninni í úrvalsdeildinni í Hallby í gærkvöldi.
Kristianstad er í áttunda sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina,...