- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Orri Freyr og félagar í kjörstöðu fyrir úrslitaleikinn

Orra Frey Þorkelssyni og liðsfélögum í Sporting Lissabon varð ekkert á í messunni í kvöld þegar þeir sóttu Maritimo heim til Madeira í næsta síðustu umferð úrslitakeppni fjögurra efstu liða portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik. Þeir unnu með níu...

Silfrið kom í hlut landsliðskvennanna eftir annasamt tímabil

Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir ljúka annasömu fyrsta keppnistímabili með þýska liðinu Blomberg-Lippe með silfurverðlaunum í þýsku 1. deildinni. Blomberg-Lippe tapaði síðari úrslitaleiknum um þýska meistaratitilinn fyrir Ludwigsburg, 26:22, á heimavelli. HB Ludwigsburg er þar með...

Dagur leikur til úrslita í Evrópudeildinni

Franska liðið Montpellier með Akureyringinn Dag Gautason innan sinna raða leikur til úrslita í Evrópudeildinni í handknattleik karla á morgun gegn þýska liðinu Flensburg. Montpellier lagði THW Kiel, 32:31, í síðari undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar í Barclays Arena í Hamborg nú...
- Auglýsing -

Þorsteinn Leó hafði betur gegn Stiven Tobar

Þorsteinn Leó Gunnarsson og liðsfélagar í Porto höfðu betur gegn Benfica, með Stiven Tobar Valencia innanborðs, í næst síðustu umferð fjögurra liða úrslita portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik í Porto í dag, 37:34. Þar með eru leikmenn Porto albúnir...

Elvar Örn og Arnar Freyr leika um brons í Hamborg

Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson og samherjar í MT Melsungen leika um bronsverðlaun í Evrópudeildinni í handknattleik á morgun. Þeir töpuðu fyrir Flensburg í framlengdum háspennuleik í undanúrslitum í Hamborg í dag, 35:34. THW Kiel og Montpellier mætast...

Eyjamaðurinn er kominn á fulla ferð á nýjan leik

Hákon Daði Styrmisson og félagar í Eintracht Hagen unnu Ferndorf í þýsku 2. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 32:27. Leikið var á heimavelli Ferndorf. Hagen lyfti sér a.m.k. upp í sjöunda sæti deildarinnar með sigrinum. Hákon Daði skoraði fimm mörk...
- Auglýsing -

Molakaffi: Ómar, Gísli, Óðinn, Axel

Ómar Ingi Magnússon skoraði sigurmark SC Magdeburg þegar liðið vann Eisenach á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 33:32. Markið var eitt af tíu sem Ómar Ingi skoraði í leiknum sem var sá annar hjá liðinu...

Donni sá besti hjá Skanderborg AGF

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, landsliðsmaður í handknattleik var valinn besti leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Skanderborg AGF í kosningu sem félagið stóð fyrir á meðal stuðningsmanna félagsins. Donni kom til félagsins síðasta sumar og hefur sannarlega slegið í gegn og m.a....

Viktor Gísli leikur til úrslita í Póllandi

Viktor Gísli Hallgrímsson leikur til úrslita um pólska meistaratitilinn með Wisla Plock gegn Kielce áður en hann kveður félagið og gengur til liðs við Barcelona í sumar. Wisla Plock vann Górnika Zabrze, 35:20, í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum...
- Auglýsing -

Riðlakeppninni lauk í gær – Arnór mætir sínu gamla liði í undanúrslitum

Guðmunudur Bragi Ástþórsson skoraði fimm mörk, tvö þeirra úr vítaköstum, þegar lið hans Bjerringbro/Silkeborg gerði jafntefli við TTH Holstebro sem Arnór Atlason þjálfar, 29:29, í sjöttu og síðustu umferð riðlakeppni átta liða úrslita dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöld. Ljóst er að...

Sóttu tvö góð stig til Mannheim

Gummersbach sótti tvö góð stig til Mannheim í kvöld þegar liðið lagði Rhein-Neckar Löwen, 34:32, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Mjög öflugur leikkafli í síðari hálfleik lagði grunn að sigri liðsins en það náði um skeið sex marka...

Sjö marka tap í fyrsta úrslitaleiknum í Ludwigsburg 

Blomberg-Lippe tapaði fyrsta úrslitaleiknum gegn HB Ludwigsburg um þýska meistaratitilinn í handknattleik kvenna í kvöld, 36:29. Leikið var á heimavelli HB Ludwigsburg en liðið hefur verið það öflugasta í þýskum kvenna handknattleik um árabil. Næst mætast liðin á...
- Auglýsing -

Kolstad í meistaradeildina – Berge veiktist

Kolstad vann í kvöld úrslitakeppnina í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik og tryggði sér um leið keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Sú upphefð fylgir sigrinum í úrslitakeppninni. Kolstad vann Elverum öðru sinni í úrslitum, 31:28, á heimavelli eftir...

Molakaffi: Hannes, Tumi, Elmar, Axel

Hannes Jón Jónsson og leikmenn hans í Alpla Hard unnu Aon Fivers í sannkallaðri maraþon viðureign liðanna í undanúrslitum um austurríska meistaratitilinn í handknattleik karla í gær. Staðan var jöfn, 35:35, eftir 60 mínútna leik. Að loknum tveimur framlengingum...

Halda áfram í vonina um þriðja titilinn í röð

SC Magdeburg heldur áfram í vonina um að vinna þýska meistaratitilinn þriðja árið í röð eftir sigur á Hannover-Burgdorf, 34:28, á heimavelli í gærkvöld. Magdeburg er fimm stigum á eftir efstu liðunum tveimur Füchse Berlin og Melsungen en á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -