Varnarmaðurinn öflugi, Róbert Sigurðarson, hefur framlengt samning sinn við ÍBV til loka keppnistímabilsins 2028.
Róbert, sem er Akureyringur að upplagi og lék m.a. með Akureyri handboltafélagi, var í sex ár með ÍBV, frá 2017 til 2023 og varð tvisvar Íslandsmeistari...
Aftureldingu tókst ekki að nýta tækifærið sem gafst með tapi Vals gegn Haukum í kvöld og tylla sér á topp Olísdeildar er þeir sóttu Framara heim í kvöld. Framarar unnu öruggan sigur, 30:26. Fram var einnig fjórum mörkum yfir...
Haukar gerðu sér lítið fyrir og unnu Valsmenn, 41:34, í Olísdeild karla í handknattleik á heimavelli Vals í kvöld. Þvert á vonir margra var viðureign liðanna aldrei spennandi. Til þess voru yfirburðir Hauka of miklir. Munurinn var sjö mörk...
Þórsarar ráku af sér slyðruorðið í kvöld og fögnuðu öruggum sigri á lánlausum Stjörnumönnum, 29:24, í Hekluhöllinni í Garðabæ í 16. umferð Olísdeildar karla í handknattleik. Þetta var fyrsti sigur Þórsara í deildinni síðan 23. október þegar þeir lögðu...
Það á ekki af Stjörnumönnum að ganga um þessar mundir. Á dögunum sleit Pétur Árni Hauksson krossband og nú berast þau ótíðindi á Handkastinu að Ísak Logi Einarsson sé ristarbrotinn. Ekki verður hjá því komist að Ísak Logi verði...
Flautað var til leiks í Olísdeild karla í gærkvöld eftir hlé síðan um miðjan desember. Þrír leikir fóru fram. FH lagði HK í Kórnum, 32:29, ÍBV vann Selfoss, 40:28 í Vestmannaeyjum, og KA hafði betur í heimsókn til ÍR,...
„Á æfingu á mánudaginn hoppaði ég upp í loftið, lenti á stoðfæti á öðrum leikmanni og sneri mig þá nokkuð illa á hægri ökklanum,“ segir Dagur Gautason, vinstri hornamaður KA, í samtali við handbolta.is, spurður út í fjarveru sína...
Þorvaldur Örn Þorvaldsson, línumaður Vals, segir framtíð sína ekki komna á hreint að svo stöddu. Samningur Þorvalds Arnar við Val rennur út að yfirstandandi tímabili loknu og er hann sömuleiðis með samningstilboð frá pólska félaginu GE Wybrzeże Gdansk í...
FH vann baráttusigur á HK í Kórnum í kvöld, 32:29, í viðureign liðanna í 16. umferð Olísdeildar karla í handknattleik og halda þar með fjórða sætinu, stigi á eftir Haukum. HK er hins vegar áfram í 9. sæti deildarinnar...
Eyjamenn tóku upp þráðinn þar sem frá var horfið í Olísdeild karla í handknattleik á heimavelli í kvöld með öruggum sigri á Selfossi, 40:28. ÍBV er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig en Selfoss er í 10. sæti.
Hákon...
Ágúst Elí Björgvinsson lék sinn fyrsta deildarleik hér á landi í átta ár í kvöld þegar hann varði mark KA í sjö marka sigri á ÍR, 37:31, í fyrsta leik liðanna á nýju ári. Leikurinn fór fram í Skógarseli....
Pétur Árni Hauksson, leikmaður Stjörnunnar, varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné í æfingaleik með liðinu gegn FH í janúar. Pétur Árni leikur því ekki handbolta næsta tæpa árið eða svo.
Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, greindi frá ótíðindunum...
Þrír leikir eru á dagskrá í 16. umferð Olísdeildar karla í kvöld þegar keppni hefst á ný í deildinni eftir tæplega sex vikna EM-pásu. Þá lýkur átta liða úrslitum Powerade bikars kvenna með einum leik.
HK fær FH í heimsókn...
Handknattleiksmaðurinn Einar Sverrisson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Selfoss. Rétt ár er liðið síðan Einar tók fram skóna eftir hlé frá handbolta og hóf að leika með FH. Var hann í herbúðum Hafnarfjarðarliðsins út leiktíðina. Einar kom...
Gríski handknattleiksmaðurinn Orfeus Andreou hefur fengið tímabundin félagaskipti úr Víði Garði, sem leikur í 2. deild, yfir til HK í Olísdeild karla. Orfeus hefur um árabil verið driffjöður handknattleiksdeildar Víðis en hann hefur búið hér á landi um langt...