- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Handboltahöllin: Vipp kúltúr hjá norðanmönnum

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var sterkur sigur FH gegn Þór á Akureyri í 17. umferð Olísdeildar karla gerður upp. Eftir jafnan leik framan var sem FH væri í betra líkamlegu ásigkomulagi síðustu mínúturnar og vann að lokum...

Svavar og Sigurður dæma í Meistaradeild Evrópu – tvö íslensk pör í keppninni

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma saman í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla í næstu viku. Þeir hafa verið settir á viðureign Aalborg Håndbold og Kolstad Håndball í 11. umferð A-riðils Meistaradeildar í...

Markahæsti leikmaður Selfoss er úr leik

Mia Kristin Syverud, markahæsti leikmaður Selfoss, handleggsbrotnaði í viðureign Selfoss og Hauka í Olísdeild kvenna 15. janúar. Óvíst er hvort hún leikur meira með liðinu á leiktíðinni, eftir því sem Handkastið hefur eftir Eyþóri Lárussyni þjálfara Selfossliðsins. Meiðsli Syverud koma...
- Auglýsing -

Handboltahöllin: Snúningur ársins?

„Við ætlum að enda þessa umfjöllun á snúningi ársins,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon í Handboltahöllinni á Handboltapassanum í gærkvöldi. Þar vísaði hann til glæsilegs snúnings á boltanum í marki Færeyingsins Bjarna í Selvindi í stórsigri Vals á Aftureldingu í...

Handboltahöllin: Skemmtilegt að sjá mæðgur mætast

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var farið yfir þá skemmtilegu staðreynd að mæðgur mættust í leik KA/Þórs og ÍBV í 16. umferð Olísdeildar kvenna. Ólöf Maren Bjarnadóttir lék í marki ÍBV og móðir hennar Selma Sigurðardóttir lék í mark...

Ekki á af Stjörnunni að ganga

Enn bætist á meiðslalista karlaliðs Stjörnunnar þar sem hægri hornamaðurinn Gauti Gunnarsson missir að minnsta kosti af næsta leik liðsins í Olísdeildinni eftir að hafa snúið sig á ökkla í 17. umferð deildarinnar á sunnudaginn. Handkastið greinir frá því að...
- Auglýsing -

Handboltahöllin: Þetta er Robbi Gunn „special“

Það var um margt að fjalla í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld þar sem gera þurfti upp þrjár heilar umferðir í Olísdeildum karla og kvenna. Farið var yfir 16. og 17. umferð í Olísdeild karla og 16. umferð í...

ÍR-ingar eru ekki af baki dottnir

ÍR-ingar eru ekki af baki dottnir í baráttu fyrir áframhaldandi tilverurétti sínum í Olísdeild karla í handknattleik. Það sýndu þeir svo sannarlega í kvöld er þeir lögðu HK, 36:31, í Skógarseli. ÍR-ingar eru ennþá neðstir í deildinni með sjö...

Alexandra Ósk framlengir í Eyjum

Unglingalandsliðskonan Alexandra Ósk Viktorsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV og klæðist þar með búningi félagsins að minnsta kosti út leiktíðina vorið 2028. Alexandra Ósk, sem leikur í hægra horni, er með þeim efnilegustu leikmönnum ÍBV og hefur átt...
- Auglýsing -

Mæðgur voru andstæðingar um stund

Mægður voru andstæðingar á handknattleiksvellinum í dag þegar KA/Þór og ÍBV áttust við í KA-heimilinu í Olísdeild kvenna. Selma Sigurðardóttir var ein þriggja markavarða KA/Þórs en dóttir hennar Ólöf Maren Bjarnadóttir varði mark ÍBV. Báðar komu þær við sögu...

Dagur skoraði sigurmark á síðustu sekúndu – ÍBV, FH og KA vinna – Selfoss sótti stig í Garðabæ

Dagur Arnarsson innsiglaði sigur ÍBV á Haukum, 29:28, í viðureign liðanna í Olísdeild karla í handknattleik á Ásvöllum í dag. Dagur skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins eftir að Haukar höfðu tapaði boltanum 10 sekúndum fyrir leikslok. Haukar misstu...

Valsmenn á toppinn á ný – Annað tap Aftureldingar

Eftir slæmt tap fyrir Haukum á fimmtudagskvöld komu leikmenn Vals eins og grenjandi ljón til leiks í Mosfellsbæ í dag og unnu Aftureldingarmenn með átta marka mun, 35:27. Valur var sex mörkum yfir í hálfleik í Myntkauphöllinni, 18:12. Sigurinn...
- Auglýsing -

ÍBV átti ekki í vandræðum í KA-heimilinu

ÍBV átti ekki teljandi vandræðum með að vinna KA/Þór í síðasta leik 16. umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik í KA-heimilinu í dag. ÍBV var skrefi framar og rúmlega það frá upphafi til enda leiksins og vann með 10 marka...

Dagskráin: Leikir í fjórum deildum

Líf og fjör verður víða á handboltavöllum í dag þegar fimm leikir í Olísdeild karla fara fram og einn leikur í Olísdeild kvenna. Einnig verður leikið í Grill 66-deildum karla og kvenna. Leikir dagsins Olísdeild karla, 17. umferð:Myntkaup-höllin: Afturelding - Valur,...

Sara Dögg átti stórleik – ÍR endurheimti þriðja sætið

Sara Dögg Hjaltadóttir átti stórleik fyrir ÍR í kvöld þegar liðið lagði Stjörnuna, 31:27, í 16. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Hekluhöllinni í Garðabæ. Sara Dögg skoraði 13 mörk og dró félaga sína áfram í átt að sigrinum...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -