Þýska stórveldið THW Kiel hefur samið við þýska vinstri hornamanninn Vincent Büchner um að leika með liðinu frá næsta sumri. Kemur hann frá THsV Eisenach og mun leysa Danann Magnus Landin af hólmi.
Landin gengur til liðs við danska stórveldið...
Hans Óttar Lindberg Tómasson, Daninn með íslensku foreldrana sem lék með danska landsliðinu í 22 ár, var heiðraður fyrir magnaðan landsliðsferil sinn eftir sigur Danmerkur á Bandaríkjunum í alþjóðlega mótinu Golden League í Kaupmannahöfn á laugardag.
Hans Óttar, sem er...
Norski markvörðurinn Katrine Lunde, goðsögn í lifanda lífi, mun í næsta mánuði spila sína síðustu landsleiki á löngum og farsælum ferli sínum þegar Noregur mætir Rúmeníu og Slóvakíu í Evrópubikar EHF.
Lunde, sem er einn besti markvörður handknattleikssögunnar, er orðin...
Handknattleikssambönd Serbíu, Svartfjallalands og Norður-Makedóníu hafa ákveðið að taka höndum saman og stofna sameiginlega Balkanskaga deild sem mun samanstanda af liðum frá þjóðunum þremur. Um bæði karla og kvenna deildir verður að ræða.
Eftir að forsvarsmenn sambandanna þriggja funduðu var...
Meistaraskjöldur 1. deildar karla í Þýskalandi er kominn í leitirnar, fjórum mánuðum eftir að honum var stolið af skrifstofu Füchse Berlín, ríkjandi Þýskalandsmeistara. Skjöldurinn fannst nýverið í kjallara félagsins, falinn á bak við pappakassa.
Um hið undarlegasta mál er að...
Natasja Hammer leikmaður Stjörnunnar er á meðal 16 leikmanna sem Claus Leth Mogensen og Simon Olsen þjálfarar færeyska kvennalandsliðsins hafa valið til þátttöku í tveimur síðustu leikjum landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins 8. og 12. apríl. Fyrri leikurinn verður gegn...
Simon Pytlick, leikmaður SG Flensburg-Handewitt og danska landsliðsins, er óánægður með forvígismenn þýska félagsins og upplifir sig svikinn. Pytlick á að ganga til liðs við Füchse Berlín sumarið 2027 en nýjustu ummæli hans þykja renna stoðum undir það að...
Færeyingar mæta Bosníumönnum í umspilsleikjum heimsmeistaramóts karla í handknattleik upp úr miðjum maí. Bosnía vann Kósovó samanlagt, 66:54, í tveimur viðureignum forkeppninnar sem lauk í dag. Kósovóbúar unnu síðari viðureignina í Pristina í dag, 33:29. Það dugði skammt eftir...
Vinstri hornamaðurinn August Pedersen jafnaði í dag met norska karlalandsliðsins yfir flest mörk í einum leik þegar hann skoraði 19 mörk í 38:31 sigri Noregs á Hollandi á alþjóðlega mótinu Golden League í Kaupmannahöfn.
Mörgum er það minnisstætt þegar Kjetil...
Ísrael komst áfram úr forkeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik eftir að hafa lagt landslið Georgíu samanlagt með eins marks mun, 60:59, í tveimur leikjum sem fram fóru í Georgíu í dag og á fimmtudaginn. Ísraelska landsliðið mætir spænska landsliðinu...
Alþjóðlegt handknattleiksmót, með þátttöku evrópskra félagsliða, sem fram átti að fara í Bandaríkjunum í sumar fer fram í Evrópu. Óvíst er hins vegar hvar í álfunni verður leikið. Ástæður breytinganna eru m.a. sagðar vera vaxandi stirðleiki í samskiptum Evrópuríkja...
Tvö öflugustu landslið Evrópumótsins í handknattleik karla í janúar, Evrópumeistarar Danmerkur og silfurlið Þýskalands, mætast tvisvar í vináttuleikjum 15. og 17. maí. Fyrri leikurinn fer fram í Royal Arena í Kaupmannahöfn en sá síðari í Lanxess Arena í Köln...
Spánverjinn Talant Dujshebaev hóf feril sinn sem þjálfari franska karlalandsliðsins með því að vinna landa sína í Spáni, 29:26, í vináttulandsleik í Le Mans í Frakklandi í kvöld.
Dujshebaev tók nýverið við stjórnartaumunum hjá franska liðinu í kjölfar þess að...
Hin norska Camilla Herrem greindi nýverið frá því að hún hafi sigrast á brjóstakrabbameini. Stuttu eftir greiningu sneri Herrem aftur á völlinn með liði sínu Sola. Hún hrósar eiginmanni sínum og þjálfara Steffen Stegavik í hástert fyrir það hvernig...
Tveir leikir fóru fram í gær í forkeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik, Evrópuhluta. Áfram verður haldið í dag og í kvöld. Síðari umferð forkeppninnar fer fram á laugardag og sunnudag. Samanlagður sigurvegari tekur þátt í umspilsleikjum heimsmeistaramótsins upp úr...