Svo kann að fara að Rhein-Neckar Löwen tapi stigunum tveimur sem liðið vann í viðureign við Lemgo í þýsku 1. deildinni í handknattleik á föstudaginn. Samkvæmt óstaðfestum fregnum Mannheimer Morgen var einn leikmaður Rhein-Neckar Löwen sem tók þátt í...
Evrópumeistarar Györi Audi ETO KC, Metz Handball, Brest Bretagne Handball og CSM Bucuresti hrepptu efstu tvö sætin í hvorum riðli Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki sem lauk í gær. Liðin fjögur sitja yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og taka sæti...
Danska stórliðið Aalborg Håndbold hefur skrifað undir nýjan samning við markvörðinn reynda Niklas Landin. Sömuleiðis hefur Aalborg tilkynnt að yngri bróðir hans, Magnus Landin, gangi til liðs við félagið í sumar frá THW Kiel.
Niklas, sem er 37 ára gamall,...
Evrópumeistarar og Íslendingalið SC Magdeburg hefur samið við króatíska markvörðinn Dominik Kuzmanovic um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Skrifar hann undir fimm ára samning, sem er í lengra lagi innan handboltans.
Kuzmanovic, sem er 23 ára...
Þýski handboltamaðuronn Nils Kretschmer hefur ákveðið að snúa ekki aftur á keppnisvöllinn þegar keppnisbanni hans vegna ólöglegrar lyfjanotkunar lýkur í desember árið 2027. Kretschmer heldur úti vinsælum Instagramaðgangi og einbeitir sér nú alfarið að því að vera samfélagsmiðlastjarna.
Í samtali...
Simon Hald, línumaður og varnartröll þrefaldra meistara Danmerkur, þarf að bíða enn um sinn eftir því að komast aftur á handboltavöllinn. Hald fann fyrir hjartsláttartruflunum í leik gegn Íslandi í undanúrslitum EM 2026 í Herning í lok janúar og...
Ráðning FH á Aroni Pálmarssyni sem aðstoðarþjálfara karlaliðsins hefur vakið töluverða athygli hjá erlendum miðlum. Aron átti frábæran feril sem leikmaður áður en skórnir fóru á hilluna að loknu síðasta tímabili og vekur það sem hann tekur sér fyrir...
Danski þjálfarinn Jan Pytlick, faðir eins besta handboltamanns heims, Simon, segir það erfitt að vera ekki stöðugt að gefa syni sínum ráð þó hann myndi glaður vilja gera það.
Simon er einn af lykilmönnum danska landsliðsins sem nú er ríkjandi...
Joaquín Rocamora hefur verið ráðinn nýr þjálfari kvennalandsliðs Spánar. Rocamora tekur við starfinu af Ambros Martín og hefur þegar hafið störf. Hann hefur áður þjálfað yngri landslið kvenna hjá Spáni auk þess að þjálfa kvennalið Atticgo Elche frá árinu...
Landsliðsmarkverðir Þýskalands, Katharina Filter og Andreas Wolff, eru handknattleiksfólk ársins 2025 hjá lesendum vikuritsins sigilda, Handballwoche. Vikuritið leitaði að vanda lesenda sinna vegna kjörsins. Niðurstöður voru kynntar á Facebook-síðu tímaritsins í dag en verða lagðar ítarlega á borð lesenda...
Norski landsliðsmaðurinn Gøran Johannessen sneri til baka út á leikvöllinn með Kolstad síðasta laugardag eftir nærri tveggja ára fjarveru vegna meiðsla og fylgikvilla.
Í apríl 2024, rétt fyrir forkeppni Ólympíuleikanna, slitnaði hásin hans á æfingu. Fjórum mánuðum síðar slitnaði hún...
Næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í handbolta 2025/26 lauk á sunnudag. Í A-riðli tryggði Metz Handball sér sæti í 8-liða úrslitum eftir sigur á BV Borussia Dortmund. Evrópumeistarar Györ hafa fyrir nokkru tryggt sér efsta sæti riðilsins og sæti...
Þýski línumaðurinn Hendrik Pekeler hefur framlengt samning sinn við THW Kiel til eins árs, fram á mitt árið 2027. Pekeler, sem er 34 ára gamall, sleit hásin undir lok síðasta keppnistímabil og byrjaði þar af leiðandi ekki leika á...
Fremur óvænt þjálfaraskipti verða hjá þýska handknattleiksliðinu Borussia Dortmund eftir leiktíðina. Kay Rothenpieler tekur við þjálfun liðsins sem er í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar og er auk þess komið í undanúrslit bikarkeppninnar.
Rothenpieler leysir af hólmi Henk Groener sem...
Íslendingalið SC Magdeburg mun samkvæmt þýskum miðlum festa kaup á króatíska markverðinum Dominik Kuzmanovic frá öðru Íslendingaliði, VfL Gummersbach, í sumar. Sport Bild greinir frá því að upphæðin sem Magdeburg reiðir fram verði dágóð.
Kuzmanovic mun mynda markvarðapar með landa...