-Auglýsing-

Chiseliov er orðinn gjaldgengur með Þór

- Auglýsing -


Hægri skyttan Igor Chiseliov verður gjaldgengur með Þór Akureyri þegar liðið sækir Íslandsmeistara Fram heim í Lambhagahöllin á laugardaginn í 2. umferð Olísdeild karla í handknattleik. Félagaskipti Chiseliov frá Radovis í Norður Makedóníu hafa hlotið blessun þar til bærra yfirvalda og staðfest á félagaskiptavef HSÍ.


Chiseliov er 33 ára gamall frá Moldóvu. Auk þess að leika í heimalandinu hefur hann verið hjá félagsliðum í Kósovó, Slóvakíu og nú síðast í Norður Makedóníu.

„Við bindum miklar vonir til nýjustu viðbót liðsins og erum spenntir að sjá hann á vellinum í vetur,“ sagði í tilkynningu Þórs þegar tilkynnt var um komu Chiseliov 26. ágúst.

Leikjadagskrá Olísdeilda.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -